Menntun
30 Jul 2004 | elfur
Háskólinn í Osló, 2006-2007.
- Framhaldsnám í upplýsinga- og samskiptatæknilögum við Háskólann í Osló (LLM). 45 eininga meistaranám sem samanstendur af fjórum fögum auk ritgerðar.
- Tekin fög (7,5ein hvert): Alþjóðlegur hugverkaréttur; fjarskiptaréttur og stjórnhættir netsins; rafræn viðskipti; og persónuvernd.
- Lokaritgerð fjallaði um áhrif örmerkinga (RFID) á persónuvernd og þá sérstaklega á neytendavörumarkaði, hæsta einkunn.
Háskólinn í Reykjavík, 2005-2007.
- Fullnaðarpróf í lögum frá Háskólanum í Reykjavík (ML). Ágætiseinkunn.
- Í meistaranáminu lagði ég áherslu á fög sem tengjast upplýsinga- og samskiptatæknirétti.
- Helstu kjörgreinar: Fjarskiptaréttur; fjölmiðlaréttur; rafræn viðskipti og stjórnsýsla; upplýsingatækniréttur; og starfsnám hjá Póst- og fjarskiptastofnun.
- Lokaritgerð fjallaði um umferðargögn í fjarskiptum með tilliti til persónuverndar, ágætiseinkunn.
Háskólinn í Reykjavík, 2002-2005.
- BA próf í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Fyrsta einkunn.
- Lauk BA prófi í lögum samhliða námi við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík. Auk hefðbundinna grunnfaga í lögfræði, eru verðbréfamarkaðsréttur, félagaréttur, samkeppnisréttur og skattaréttur skyldufög.
- HR leggur áherslu á tengsl við atvinnulífið með raunhæfum verkefnum og gestafyrirlestrum, vinnslu ítarlegra viðskiptaáætlana og raunhæfra verkefna, þar sem ganga þarf frá samningum milli aðila og reka mál fyrir Héraðsdómi.
Háskólinn í Reykjavík, 2001-2005.
- BSc próf í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Fyrsta einkunn.
- Hóf nám í viðskiptafræði í háskólanámi með vinnu (HMV) við HR haustið 2001 en gerði námið að aðalstarfi í janúar 2003. Viðskiptadeild HR leggur mikið upp úr gagnvirkum kennsluaðferðum með raunhæfum verkefnum og miklu hópastarfi.
- Stærstu verkefnin sem tengdust náminu voru: Skipulagning ráðstefnu, gerð ítarlegrar stefnumótunarskýrslu og gerð viðskiptaáætlunar.
- Lokaritgerð fjallaði um tjáningarfrelsi og auglýsingar, nánar tiltekið hvernig takmörkun á viðskiptalegu tjáningarfrelsi hefur takmarkandi áhrif á gerð og/eða birtingu auglýsinga, einkunn: 9,0.
Háskóli Íslands, 1994-1999.
- Lauk 73 af 150 einingum til embættisprófs í lögfræði við Háskóla Íslands.
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ, 1992.
- Stúdentspróf af málabraut - ferðamálalínu, desember 1992.
- Viðurkenning fyrir frábæran árangur í þýsku og góðan árangur í ensku á stúdentsprófi.
