tækni
Í einskærum klaufaskap tókst mér hið ómögulega. Ég eyddi út af servernum öllum pósti sendum til mín í dag, sunnudaginn 24. júní 2007. Nánar tiltekið öllum pósti sendum eftir kl. 4 í morgun (að íslenskum tíma).
Vissulega var þetta að mestu leyti bara ruslpóstur, en ég hef ekki hugmynd um hvort ég eyddi einhverju sem átti alls ekki skilið að fara í ruslið.
Þannig að ef þú sendir mér tölvupóst eftir kl. 4 aðfararnótt sunnudagsins og fyrir kl. 19.30 að kvöldi sama sunnudags (allt að íslenskum tíma), vinsamlegast ekki reiðast því að ég svara ekki, því ég sá ekki póstinn.
Out of pure stupidity I deleted all email sent to me between 4 AM and 7:30 PM today (GMT). If you sent me any email during that time, please don't get offended if I failed to reply, as I deleted it before having that option.
Please just resend the email :)
Það skal ég nú segja ykkur að stundum er gengið of langt í tækninni.
Ég sit hér í sófanum heima hjá mér skjálfandi á beinum undir fína kasmír teppinu sem ég fékk í jólagjöf vegna þess að rafmagnið fór af í gærkvöldi.
Rafmagnið sem sagt fór af nálægt miðnætti í gærkvöldi og kom aftur u.þ.b. hálfum tíma síðar. Sem, samkvæmt öllum skynsemismælikvörðum, ætti ekki að leiða til þess að mér sé kalt í morgunsárið. En bíðið nú við, ég hef sagt frá því áður að ég bý í mjög tæknivæddri íbúð og hefur líkað það bara mjög vel - þar til núna.
Það fyrsta sem gerðist nefnilega þegar rafmagnið fór á aftur var að loftræstingin fór á fullt og þegar ég kíkti á stillingarnar í gærkvöldi þá hafði hún núllstillt sig sem þýddi að hún var að vinna að því á fullum styrk að ná aftur 17° hita í íbúðina. Ég lagaði loftræstinguna og fór svo að sofa, til þess eins að átta mig á því nú í morgun að blessaður gólfhitinn er rafmagnsstýrður líka!
Þannig að ég sit hérna skjálfandi undir kasmír teppi bíðandi eftir því að það komi aftur hiti í gólfin, hafandi endurræst alla gólfhitaskynjara.
Svona ætla ég sko ekki að hafa þetta í minni íbúð!
Við sitjum saman við stofuborðið mæðgurnar og lærum fyrir morgundaginn. Hún fyrir próf og ég fyrir debat. Og þar sem að ég hef lítinn tíma aflögu, greip Lóa til tækninnar og situr nú með heyrnatól á höfðinu að spyrja ömmu sína, sem stödd er á Íslandi, hvað hin og þessi norsku orð þýða á íslensku.
Segðu svo að tæknin sé ekki til margra hluta nytsamleg.
Í Köben, í Köben, í kóngsins Köbenhavn
(Með lagi Stuðmanna)
Í Köben, í Köben, í kóngsins Köbenhavn
... (lallalalllalllalalla :)
Ég var sem sagt í Kaupmannahöfn stóran hluta síðustu viku.
Í Kaupmannahöfn í síðustu viku var norræn ráðstefna um upplýsingatæknilögfræði og ég framlengdi dvölina til sunnudags. Lóa kom með mér yfir og mamma kom frá Íslandi til að vera með henni á meðan ráðstefnan stóð.
Hér á næstu dögum munu birtast frásagnir af ráðstefnunni (og frítímanum) og það sem að öðru leyti hefur á daga mína drifið.
Þetta er nú meiri vitleysan. Ég vissi ekki betur en ég ætti þægilegan klukkutíma framundan um miðjan daginn í dag, ætlaði rétt að skella nýrri uppfærslu á síðuna, eins og ég hef gert svo mörgum sinnum áður ...
En nei, það var víst ekki svo gott. Nú níu tímum síðar er ég búin að lagfæra mesta skaðann, en ...
Ég vissi að líftími hönnunarinnar á vefsvæðinu hjá mér væri takmarkaður, en ég átti ekki von á því að sextán mánuðum eftir að það færi í loftið yrði ég að fara að huga að endurnýjun vegna þess að þetta útlits"konsept" væri að tröllríða þjóðinni, hvort heldur sem er í hefðbundnum auglýsingum eða vefsvæðum hinna ýmsu stórfyrirtækja - sérstaklega í fjármálageiranum. ...
Eins og glöggir lesendur hafa tekið eftir þá hefur elfur.is tekið stakkaskiptum. Ég tók þá ákvörðun að sameina el.is, elfur.is og elfur.com og stefni að því að bæta við enskri útgáfu af helstu atriðum sem hér eru fram sett.
Tæknin er yndisleg
Ég sit hér við borðstofuborð vinkonu, útlæg úr eigin húsnæði næsta sólarhringinn og ráfa um vegi veraldarinnar frá minni eigin fartölvu. Ég þakka [nafn hugmyndasmiðs] kærlega fyrir framfarirnar. Hvar sem er, hvenær sem og úr hvaða sæti sem er tengist ég netinu með einum litlum lykli og einu þunnu korti sem kemur í stað allra snúra.
Vinirnir eru yndislegir
Það er á tímum sem þessum (þegar maður er útlægur úr eigin húsnæði) sem vinir eru dýrmætir og þá sérstaklega þolinmóðir vinir, sem eru tilbúnir að taka við barni og búi án nokkurs fyrirvara. Ég er svo heppin að eiga nokkra slíka vini og er þakklát fyrir þá alla.
Tölvan sem hjálpartæki efnahagsbrotamannsins.
Hugmynd sem ég er búin að ganga með í maganum í ein 6 ár, ástæðan fyrir því að ég greip tækifærið aftur, þegar það gafst.
Það var síðan tilkynnt í dag að umsókn mín um rannsóknarstyrk frá nýsköpunarsjóði námsmanna var samþykkt, hluti af sumrinu hjá mér fer í það að rannsaka þátt tölvunnar í efnahagsbrotum.
Gott hjá mér!
Um daginn fékk ég tölvupóst þar sem mér var bent á nýja leitarvél. Ég, sem ofurnotandi á google.com gat ekki annað en undrast hverjum dytti í hug að reyna að koma annarri
vél á framfæri, en þar sem ég er óskaplega forvitin ung stúlka, þá ákvað ég að skreppa yfir á teoma.com og prófa dýrðina, sem er reyndar ennþá í beta útgáfu.
Ég sló náttúrulega inn mikilvægasta leitarorðið í mínum huga: elfur,
hálfbrosandi, þóttist alveg viss um hvaða niðurstöðu leitin myndi hafa. Mér til mikillar undrunar þá birtust strax á fyrstu tveimur
niðurstöðusíðunum slóðir á síður sem ég hafði aldrei áður séð, slóðir á síður sem ýmist minntust á mig eða nafnið mitt, jafnvel nöfnur mínar á stundum. Það sem kom mér þó mest á óvart var alger skortur á tilvísun í
evolt.org, ekki vegna þess að það væri svo mikilvægt, heldur vegna þess að nafnið mitt kemur svo oft fyrir þar og Google skilar því svo framarlega. Jafnframt varð mér ljóst að leitarvélin indexar síður á netinu ekki nógu oft, þar sem elfur.is og elfur.com voru báðar gersamlega endurnýjaðar fyrir rúmum mánuði síðan.
