noregur
Ég er í færslubanni "rétt á meðan" ég klára síðustu meistaraprófsritgerðina mína, en ég gat samt ekki orða bundist eftir upplifun mína nú áðan.
Af óútskýrðum ástæðum var ég, þar til fyrir 10 mínútum síðan, áskrifandi af markaðspóstum frá Dell Norge, sem er svosum ekki í frásögur færandi, nema ég ákvað að nú væri komið nóg og ég hefði ekkert við frekari áskrift þar að gera.
Ég fylgdi leiðbeiningunum í tölvupóstinum sem mér hafði borist, smellti á tengilinn og það opnaðist vefsíða þar sem ég gat sett inn netfangið mitt og valið að láta fjarlægja áskrift, sem ég og gerði.
Að því loknu fæ ég klassíska skilaboðasíðu þar sem tilgreint er að frá þessu verði gengið en það gæti tekið smá stund. Hluti skilaboðanna hljóðuðu svona:
As of 11/15/2007 09:40:49, this e-mail address will be opted out from all marketing e-mail subscriptions within 48 hours. In the interim, you may continue to receive e-mail marketing to which you originally subscribed.
Fair enough hugsaði ég, menn hljóta að vera að gera þetta handvirkt úr því það tekur heila tvo daga, en við látum okkur hafa það.
En svo kom í ljós þjónustulund þeirra Norðmanna, því stuttu síðar barst mér tölvupóstur til staðfestingar á þessari beiðni minni og þar höfðu Norðmennirnir þetta að segja:
Vi setter pris på å ha deg som kunde, og på din anmodning har vi fjernet din e-postadresse fra markedsføringslisten.
Du er slettet fra: [netfangið sem ég notaði]
Det kan ta opptil 28 arbeidsdager før endringen er ferdigbehandlet. I mellomtiden kan du motta e-post med reklame som du tidligere abonnerte på.
Það er ekki á Norðmennina logið. Það tekur þá allt að 28 virka daga að vinna það sem Kaninn telur sig þurfa tvo daga til.
Klassískir Norðmenn var það eina sem ég hugsaði.
Það var ekki leiðinlegt að lesa tölvupóstinn minn nú áðan. Bente, tengiliður norsku lagadeildarinnar við erlenda stúdenta í upplýsinga- og samskiptatæknilaga náminu, sendi mér línu til þess að segja mér að LLM skírteinið færi í póst fljótlega og þyrfti þess vegna að fá heimilisfangið mitt. ...
Fyrir ári og degi síðan sat ég í leigubíl á leiðinni til nýrra heimkynna í nýju landi sem ég hafði varla komið til áður.
Í dag tók ég lestina en enn á ný eru tímamót - ég er á leiðinni heim. Árið er liðið, prófin eru búin og ritgerðin í vinnslu.
Bráðum tekur alvaran við - og vonandi peningaframleiðslan líka.
Mér brá óneitanlega svolítið mikið þegar ég heyrði tölvustýrðu röddina segja mér að ég væri nr. 78 í röðinni þegar ég hringdi í tryggingafélagið mitt hér í Noregi í morgun. Ég róaðist aðeins þegar strax þar á eftir komu upplýsingar um að 56 aðilar sæu um að svara símtölum.
En það var ljóst að það var mikið að gera og tölvustýrða röddin sagði mér það líka, að mikið ...
Þetta er nokkurn veginn nákvæmlega það sem ég er að skrifa um af miklum móð þessa dagana.
Samkvæmt heimildum Orðsins á götunni eru dæmi um það meðal stórra fasteignafélaga á höfuðborgarsvæðinu að þeir komi fyrir staðsetningarbúnaði á erlendum konum sem sjá um þrif á eignum þeirra.
Þetta mun vera í þeim tilgangi að fylgjast með því hvar þær eru á hverjum tíma og hvort þær séu ekki örugglega að vinna ölllum stundum. Það er spurning hvort um sé að ræða búnað svipaðan þeim sem bandarísk fangelsisyfirvöld nota til að fylgjast með því hvort fólk sem dæmt eru í stofufangelsi sé heima hjá sér og sjá má hér á myndinni til hliða?
Ég geri fastlega ráð fyrir að hér sé um nýtingu á RFID tækninni að ræða, þar sem einstaklingurinn ber á sér t.d. lítið aðgangskort sem notað er til þess að ...
Dóttirin tók þrjú samræmd próf í síðasta mánuði í sendiráði Íslands í Osló. Gert vegna þess að við höfum verið að íhuga möguleikann að hún fari í menntaskóla strax í haust, ári fyrr en áætlanir hafa gert ráð fyrir.
Og einkunnirnar bárust okkur í gær: 9 í ensku og 8,5 í íslensku og stærðfræði.
Geri aðrir betur, utan skóla með tveggja mánaða undirbúningi.
Það er óþarfi að segja frá því hversu óheyrilega stolt móðir ég er :)
Jæja, þá er vonandi komið að nýjum áfanga í mínu lífi.
Ef Guð lofar, þá hef ég setið mitt síðasta próf í háskóla.
Framundan eru ritgerðaskrif - tvær meistaraprófsritgerðir á næstu 6 mánuðum, en mikið ótrúlega er það notarleg tilfinning að sjá fyrir endan á þessu brölti :)
En hvað svo?
Það er spurningin sem ég velti ...
Það skal ég nú segja ykkur að stundum er gengið of langt í tækninni.
Ég sit hér í sófanum heima hjá mér skjálfandi á beinum undir fína kasmír teppinu sem ég fékk í jólagjöf vegna þess að rafmagnið fór af í gærkvöldi.
Rafmagnið sem sagt fór af nálægt miðnætti í gærkvöldi og kom aftur u.þ.b. hálfum tíma síðar. Sem, samkvæmt öllum skynsemismælikvörðum, ætti ekki að leiða til þess að mér sé kalt í morgunsárið. En bíðið nú við, ég hef sagt frá því áður að ég bý í mjög tæknivæddri íbúð og hefur líkað það bara mjög vel - þar til núna.
Það fyrsta sem gerðist nefnilega þegar rafmagnið fór á aftur var að loftræstingin fór á fullt og þegar ég kíkti á stillingarnar í gærkvöldi þá hafði hún núllstillt sig sem þýddi að hún var að vinna að því á fullum styrk að ná aftur 17° hita í íbúðina. Ég lagaði loftræstinguna og fór svo að sofa, til þess eins að átta mig á því nú í morgun að blessaður gólfhitinn er rafmagnsstýrður líka!
Þannig að ég sit hérna skjálfandi undir kasmír teppi bíðandi eftir því að það komi aftur hiti í gólfin, hafandi endurræst alla gólfhitaskynjara.
Svona ætla ég sko ekki að hafa þetta í minni íbúð!
Eins og við vitum er það hverjum skóla mikilvægt að gera sér grein fyrir því hvernig nemendum hefur litist á námskeið sem þeir hafa tekið.
Háskólinn í Osló er þar engin undantekning, en þó verð ég að segja að þeir ganga örlítið lengra í spurningunum heldur en aðrir skólar sem ég hef svarað sambærilegum könnunum hjá.
Í viðleitni sinni til þess að athuga hvernig mér hefur liðið á námskeiðinu (eða hvað annað getur það verið), leggja þeir fram spurninguna sem ég setti sem fyrirsögn þessarar færslu:
What do you think about psychological learning environment of this course?
Sálfræðilegt námsumhverfi námskeiðsins er þeim greinilega mjög mikilvægt.
Og af því ég veit ekki einu sinni ...
Það verður seint sagt um Norðmenn að þeir séu snöggir að hlutunum. Þeir flýta sér hægt - og á köflum alveg rosalega hægt. Það tekur vikur að fá kennitölu, daga að ganga frá einföldum skráningum tengdum skólagöngu og svo mætti lengi telja. En það sem truflar mig sérstaklega þessa dagana er að sófinn sem ég keypti þann 29. ágúst síðastliðinn - segi og skrifa ÁGÚST - er ekki ennþá kominn og mun ekki koma fyrr en eftir eina viku í viðbót. ...
