frítíminn

Ég þarf víst ekki að segja ykkur að það er komið nýtt ár. Árið tvöþúsundogátta, takk fyrir. Með þessu nýja ári fylgja hjá mér hins vegar stærri breytingar en undanfarin áramót hafa haft í för með sér:

Skrítið

Sep 20
2007

Það var skrítin tilfinning að vakna í morgun. Þegar ég var búin að klæða mig, þvo mér, borða morgunmat og bursta tennurnar þá vissi ég hreint ekki hvað ég ætti að gera.

Jú, pabbi hafði beðið mig fyrir verkefni og jújú auðvitað mun ég vinna það, en það var ekkert sem lá á að byrja strax.

Ég stóð inni í herbergi, horfði á skrifborðið og áttaði mig loksins á því að ritgerðin var farin og það var ekkert sem ég gæti gert til þess að breyta henni og ekkert sem ég þyrfti nauðsynlega við tímann í dag að gera - fyrir utan að eiga pantaðan tíma úti í bæ kl. 15.30 í dag.

Það var ótrúlega skrítin tilfinning, ...

Jæja, þá er vonandi komið að nýjum áfanga í mínu lífi.
Ef Guð lofar, þá hef ég setið mitt síðasta próf í háskóla.

Framundan eru ritgerðaskrif - tvær meistaraprófsritgerðir á næstu 6 mánuðum, en mikið ótrúlega er það notarleg tilfinning að sjá fyrir endan á þessu brölti :)

En hvað svo?
Það er spurningin sem ég velti ...

(Með lagi Stuðmanna)
Í Köben, í Köben, í kóngsins Köbenhavn
... (lallalalllalllalalla :)

Ég var sem sagt í Kaupmannahöfn stóran hluta síðustu viku.
Í Kaupmannahöfn í síðustu viku var norræn ráðstefna um upplýsingatæknilögfræði og ég framlengdi dvölina til sunnudags. Lóa kom með mér yfir og mamma kom frá Íslandi til að vera með henni á meðan ráðstefnan stóð.

Hér á næstu dögum munu birtast frásagnir af ráðstefnunni (og frítímanum) og það sem að öðru leyti hefur á daga mína drifið.

Jæja, rumpum þessu af. Mér finnst alveg ótækt að vera ekki búin að segja frá öllum þessum stórskemmtilegu (og þessu eina leiðinlega) atvikum sem á daga mína hafa drifið frá því ég fækkaði mjög dagbókarfærslunum í lok ágústmánaðar ...

Eins og lýðnum má vera ljóst verða breytingar hjá mér í byrjun ágúst nk. þegar ég flyt tímabundið til Osló til þess að slá lokahöggið í námsbrölti mínu.
Ég hef minnst á það áður að ég er að setjast á norskan skólabekk að nema upplýsinga- og samskiptatæknilögfræði.
...

Sniglabandið

Jan 14
2006

Það rifjaðist upp fyrir mér í kvöld hvers vegna ég fór á svona mörg böll og marga tónleika með Sniglabandinu hér á árum áður. Björgvin Ploder og Þorgils voru sem sagt í Það var lagið í kvöld ásamt Birgi og Kalla í Gildrunni (Gildrumezz var það kallað í kvöld).

það verður nú bara að segjast að skemmtana "chemistry"-ið milli þessara manna var stórkostlegt. Þetta var hin mesta skemmtun, svo mikil að ég ákvað að setja afrit á myndbandsspólu til frekari upprifjunar síðar.

Takk fyrir mig.

Ég var ásamt hinum helmingnum af minni kynslóð stödd í Egilshöll í gærkvöldi. Ég er hreint fullviss um að þar fór fram landsins stærsta unglinga "ríjúníon" sem sögur fara af. Andlitin sem ég þekkti frá fyrri tíð skiptu hundruðum og var ég eiginlega búin að gleyma hvað ég hef kynnst mörgum í gegnum tíðina.
...

Búúúúiin!

Jun 12
2005

Ég átti góðan dag í gær. Eiginlega alveg stórgóðan. Var mætt í myndatöku niðr'í skóla rétt um 11 og síðan tók við æfing fyrir útskrift og loks útskriftin sjálf. Ég fagnaði með fjölskyldu og vinum frá síðdegi fram á nótt og vaknaði þreytt en sæl ískyggilega nálægt hádegi í dag.

Ég er fyrsti nemandinn í sögu Háskólans í Reykjavík sem útskrifast frá tveimur deildum á sama tíma, og það á fjórum árum, og er bara nokkuð stolt af því. Það var reyndar ekkert minnst á það í athöfninni en það er ekki það sem máli skiptir, enda dugir tilkynning fréttastofu Útvarps um efnið. [Innskot: Það voru að sjálfsögðu eingöngu 258 nemendur sem brautskráðust frá HR þar sem ég telst tvisvar í birtum tölum, einu sinni með lagadeild og einu sinni með viðskiptadeild.]

Ég stefni enn ótrauð á áframhaldandi laganám og mun ljúka meistaranámi með áherslu á fjölmiðla-, upplýsingatækni- og fjarskiptarétt, en það er aldrei að vita nema leiðin að markinu breytist verði rétta tækifærið á vegi mínum. Hvernig það allt saman fer mun tíminn einn leiða í ljós.

Jæja, það er komið að útskrift, atburðinum sem gefur mér kvittun fyrir streði síðustu ára.

Af því tilefni verður opið hús á Skjólbrautinni. Ef þú þekkir mig og vilt koma og fagna þessum tímamótum með mér, vertu velkomin(n). Dagurinn er 11. júní n.k. og húsið opnar kl. 17.00.
...

Syndicate content