fjölskyldan

Þá er klukkan orðin rúmlega 18 að íslenskum tíma og við Lóa stóðum á refresh takkanum síðustu fimm mínúturnar.
Niðurstaðan var í samræmi við væntingar og trítlan mín hefur nám í menntaskóla í haust - í Menntaskólanum í Reykjavík.
Þar byrjuðu báðir foreldrar mínir sitt menntaskólanám og einhver systkini pabba líka.

Ég held að þetta verði frábært fyrir hana enda ...

Dóttirin tók þrjú samræmd próf í síðasta mánuði í sendiráði Íslands í Osló. Gert vegna þess að við höfum verið að íhuga möguleikann að hún fari í menntaskóla strax í haust, ári fyrr en áætlanir hafa gert ráð fyrir.

Og einkunnirnar bárust okkur í gær: 9 í ensku og 8,5 í íslensku og stærðfræði.

Geri aðrir betur, utan skóla með tveggja mánaða undirbúningi.

Það er óþarfi að segja frá því hversu óheyrilega stolt móðir ég er :)

Við sitjum saman við stofuborðið mæðgurnar og lærum fyrir morgundaginn. Hún fyrir próf og ég fyrir debat. Og þar sem að ég hef lítinn tíma aflögu, greip Lóa til tækninnar og situr nú með heyrnatól á höfðinu að spyrja ömmu sína, sem stödd er á Íslandi, hvað hin og þessi norsku orð þýða á íslensku.

Segðu svo að tæknin sé ekki til margra hluta nytsamleg.

(Með lagi Stuðmanna)
Í Köben, í Köben, í kóngsins Köbenhavn
... (lallalalllalllalalla :)

Ég var sem sagt í Kaupmannahöfn stóran hluta síðustu viku.
Í Kaupmannahöfn í síðustu viku var norræn ráðstefna um upplýsingatæknilögfræði og ég framlengdi dvölina til sunnudags. Lóa kom með mér yfir og mamma kom frá Íslandi til að vera með henni á meðan ráðstefnan stóð.

Hér á næstu dögum munu birtast frásagnir af ráðstefnunni (og frítímanum) og það sem að öðru leyti hefur á daga mína drifið.

... sagði hún móðir mín rétt í þessu.

Þetta var algjörlega svona had to be there augnablik en mikið óstjórnlega var þetta fyndið, svo fyndið að ...

Það hefur verið lítið um færslur á vefsíðunni síðastliðna daga, sem einkennist fyrst og fremst af leti, umfram öðru. Ég hef frá nógu að segja, hef bara ekki verið í rétta grúvinu til að segja frá því.

Miðvikudagur í IKEA

Ef við förum yfir daganna í tímaröð, þá fór miðvikudagurinn í IKEA ferð, eins og áður hafði verið boðað, og í þetta skiptið var ég ekki sex tíma í burtu og ekki heldur eins pirruð þegar ég kom til baka. Þó lenti ég vissulega í pirringi á kassanum, þar sem stúlkugreyið reyndi að þræta við mig um hvort debetkortið mitt væri bankakort eða ekki. Hún þrábað um að ég framvísaði bankakorti ásamt debetkortinu og alveg sama hversu mikið ég reyndi að sannfæra hana, þá spurði hún alltaf aftur. Að lokum gafst hún upp, hringdi í yfirmanninn og fékk á endanum heimild til að taka leiðbeiningum og skrifaði niður bankaábyrgðarnúmer debetkortsins.
...

Já, það kom að því að við mæðgurnar myndum gerast túristar. Við gengum um miðborg Oslóar í dag skoðandi hina og þessa hluti. Við lögðum af stað heiman frá okkur og löbbuðum upp á Alexander Kiellands plass, þaðan sem allar áttir heimsins eiga uppruna sinn.
Alexander Kiellands plass er sem sagt efsti hlutinn á græna blettinum sem er vinstra megin við götuna okkar sem er á kortinu á tenglinum hér rétt fyrir ofan, púff, það gat ekki verið skýrara :). ...

Íbúðin mín lítur í augnablikinu út eins og hún sé stödd mitt í múslimsku hverfi Beirútborgar fremur en í rólegu og grónu hjarta Kópavogs. Það eru þrjúhundruðogsjötíu kassar á fleygiferð um alla íbúð, ýmist á leið inn í geymslu eða út úr henni og enn fleiri sem bíða þess að verða fluttir í skip.

Sá hluti búslóðarinnar sem tekinn verður með, fer sem sagt í skip eftir sex daga, afgangurinn fer í geymsluna (ég þakka guði og karli föður mínum fyrir forsjónina með því að hafa hætt við að fylla í rýmið undir bílskúrnum, eins og upphaflegar teikningar gerðu ráð fyrir hér um árið).

Eins og lýðnum má vera ljóst verða breytingar hjá mér í byrjun ágúst nk. þegar ég flyt tímabundið til Osló til þess að slá lokahöggið í námsbrölti mínu.
Ég hef minnst á það áður að ég er að setjast á norskan skólabekk að nema upplýsinga- og samskiptatæknilögfræði.
...

Ég stökk til Osló í síðustu viku, með ca. 2ja daga fyrirvara, til þess að skoða og helst ganga frá íbúð sem litla fjölskyldan myndi búa í á meðan á Noregsnámi stæði.

Og ég hafði árangur sem erfiði. Ég fann fallega íbúð í góðu húsi í ágætu nágrenni við miðbæinn og þá staði sem mikilvægir eru - án þess þó að vera alveg ofaní bæ.
...

(varúð: langur texti, mikið af myndum, vonandi ekki of þungt í niðurhalningu)

Syndicate content