lögfræði
Nýtt ár, nýr áfangi, nýtt upphaf, sama líf
Ég þarf víst ekki að segja ykkur að það er komið nýtt ár. Árið tvöþúsundogátta, takk fyrir. Með þessu nýja ári fylgja hjá mér hins vegar stærri breytingar en undanfarin áramót hafa haft í för með sér:
Það var ekki leiðinlegt að lesa tölvupóstinn minn nú áðan. Bente, tengiliður norsku lagadeildarinnar við erlenda stúdenta í upplýsinga- og samskiptatæknilaga náminu, sendi mér línu til þess að segja mér að LLM skírteinið færi í póst fljótlega og þyrfti þess vegna að fá heimilisfangið mitt. ...
Við erum ekki alltaf sammála ég og Jónas, en ég kippi mér sjaldnast upp við það. Í ljósi efnisins, þá tel ég þó rétt að þegja ekki núna.
Ein af færslum Jónasar frá 17. september:
Persónuverndun glæpamanna
Gallinn við persónuvernd er, að hún er einkum í þágu glæpona. Reiðin út af birtingu skattskrár er upprunnin hjá fólki, sem vill ekki láta koma upp um sig. Gagnrýni á eftirlitsmyndavélar og fingraskanna á rætur sínar í óskum fólks að fela sig fyrir lögum og rétti. Heiðarlegt fólk þarf ekki að óttast skattskrá, eftirlitsmyndir, fingraför, ættir, kennitölu. Gegnsætt samfélag er í þágu venjulegs fólks. Aðrir ramba á jaðri samfélagsins, ofbeldismenn, fíkniefnasalar, skattsvikarar. Þeir vilja, að sem minnst sé um sig vitað. Róttækar hugmyndir um persónuvernd eru fyrst og fremst í þágu glæpamanna.
Ég hef rétt nýlokið við eina ritgerð þar sem ég fjalla um upplýsingasöfnun venjulegra fyrirtækja á persónuupplýsingum venjulegra neytenda - hvorugan hópinn ætla ég glæpamenn.
...
Þetta er nokkurn veginn nákvæmlega það sem ég er að skrifa um af miklum móð þessa dagana.
Samkvæmt heimildum Orðsins á götunni eru dæmi um það meðal stórra fasteignafélaga á höfuðborgarsvæðinu að þeir komi fyrir staðsetningarbúnaði á erlendum konum sem sjá um þrif á eignum þeirra.
Þetta mun vera í þeim tilgangi að fylgjast með því hvar þær eru á hverjum tíma og hvort þær séu ekki örugglega að vinna ölllum stundum. Það er spurning hvort um sé að ræða búnað svipaðan þeim sem bandarísk fangelsisyfirvöld nota til að fylgjast með því hvort fólk sem dæmt eru í stofufangelsi sé heima hjá sér og sjá má hér á myndinni til hliða?
Ég geri fastlega ráð fyrir að hér sé um nýtingu á RFID tækninni að ræða, þar sem einstaklingurinn ber á sér t.d. lítið aðgangskort sem notað er til þess að ...
Það féllu tveir hæstaréttardómar í gær, fimmtudag, sem báðir fjölluðu um áfengisauglýsingar. Í báðum dómum komst hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að birting umræddra auglýsinga hafi verið andstæð ákvæðum 20. gr. áfengislaga (áfl.). Munurinn á dómunum fellst þó í því að í öðru málinu var starfandi stjórnarformaður Karls K. Karlssonar sýknaður en í hinu málinu var framkvæmdastjóri Rolf Johansen sakfelldur að hluta. Það sem ræður mismunandi niðurstöðum enn einu sinni er ákvæði hinna 50 ára gömlu prentlaga um nafngreiningu höfundar við birtingu á prenti. Lítum nánar á málin:
Jæja, þá er vonandi komið að nýjum áfanga í mínu lífi.
Ef Guð lofar, þá hef ég setið mitt síðasta próf í háskóla.
Framundan eru ritgerðaskrif - tvær meistaraprófsritgerðir á næstu 6 mánuðum, en mikið ótrúlega er það notarleg tilfinning að sjá fyrir endan á þessu brölti :)
En hvað svo?
Það er spurningin sem ég velti ...
Jónas Kristjánsson setur inn athyglisverðan pistil á vefsíðu sína í dag, þar sem hann fjallar um ábyrgð á birtu efni á netmiðlum.
Netmiðlar lúta lögum
Fjölmiðlar og aðrir, sem gefa út netmiðla af ýmsu tagi, eiga að gefa bloggurum auðveldan kost á að birta eingöngu athugasemdir undir fullu nafni. Þar með væri ábyrgð vísað frá netþjónum, netmiðlum og viðurkenndum bloggurum yfir á hendur fólks, sem nú felur geðveiki sína undir nafnleysi. Það mundi sleppa athugasemdunum eða vanda þær betur. Hvort tveggja er góður kostur. Dómvenja hefur skapazt um, að lög um prentmiðla gilda um ljósvakamiðla og munu því einnig gilda um netmiðla, þótt á það hafi ekki reynt. Fyrir rest er prentarinn ábyrgur, það er að segja netþjónninn.
Sérstaka athygli vekur hjá mér ummæli hans um að dómvenja hafi skapast um að prentlögin gildi um varpmiðla. Ég veit ekki betur en að núgildandi útvarpslög hafi nægilega sérgreindar ábyrgðarreglur til þess að ekki þurfi að líta til prentlaga um ábyrgð og væri því áhugavert að heyra frá Jónasi hvað hann eigi við þar.
Áfram heldur Jónas og leiðir af dómvenjunni að prentlögin hljóti að gilda um netmiðla líka. Ég er í sjálfu sér ekki ósammála því en tel að málið sé flóknara en það. Ég er í öllu falli ekki sammála því að hin sérstaka ábyrgðarröð sem rakin er í prentlögum gildi um netmiðla, þannig að á grundvelli prentlaga verði ábyrgð skref fyrir skref látin enda hjá rekstraraðila netþjónsins sé höfundur ekki nægilega sérgreindur. Enda eru fleiri lög sem taka þarf tillit til. Kemur þar upp í hugann lögin um rafræn viðskipti og rafræna þjónustu, þar sem fjallað er um ábyrgð rekstraraðila og hún einmitt sérstaklega takmörkuð.
Jæja, þá er fallinn nýr dómur um ábyrgð á birtingu áfengisauglýsinga sem enn flækir málin um eftirfylgni með áfengislögunum.
Í Hæstarétti í morgun var framkvæmdastjóri heildsölu sýknaður af kröfu ákæruvaldsins um að hann bæri refsiábyrgð á efni og birtingu auglýsinganna.
Dómurinn er um margt merkilegur. Birting auglýsinganna er talin brjóta gegn áfengislögum en vegna orðalags ábyrgðarreglu prentlaga er framkvæmdastjórinn sýknaður, þar sem hann er ekki nægilega nafngreindur í auglýsingunum.
Lagt er upp með skoðun á auglýsingunum sjálfum ...
Jæja, þá eru einkunnir komnar í hús og allir (les: ég) geta verið sáttir við sitt. Þá er bara næsta verk að bretta upp ermarnar og hella sér útí ritgerðarskrif næstu tvær vikurnar, þar til skólinn byrjar aftur.
Ég stefni að því að skrifa um örmerki (RFID) en er ennþá að finna vinkilinn á efninu. Skrifa örugglega meira um það síðar.
Í Köben, í Köben, í kóngsins Köbenhavn
(Með lagi Stuðmanna)
Í Köben, í Köben, í kóngsins Köbenhavn
... (lallalalllalllalalla :)
Ég var sem sagt í Kaupmannahöfn stóran hluta síðustu viku.
Í Kaupmannahöfn í síðustu viku var norræn ráðstefna um upplýsingatæknilögfræði og ég framlengdi dvölina til sunnudags. Lóa kom með mér yfir og mamma kom frá Íslandi til að vera með henni á meðan ráðstefnan stóð.
Hér á næstu dögum munu birtast frásagnir af ráðstefnunni (og frítímanum) og það sem að öðru leyti hefur á daga mína drifið.
