námið

Ég þarf víst ekki að segja ykkur að það er komið nýtt ár. Árið tvöþúsundogátta, takk fyrir. Með þessu nýja ári fylgja hjá mér hins vegar stærri breytingar en undanfarin áramót hafa haft í för með sér:

Það var ekki leiðinlegt að lesa tölvupóstinn minn nú áðan. Bente, tengiliður norsku lagadeildarinnar við erlenda stúdenta í upplýsinga- og samskiptatæknilaga náminu, sendi mér línu til þess að segja mér að LLM skírteinið færi í póst fljótlega og þyrfti þess vegna að fá heimilisfangið mitt. ...

Við erum ekki alltaf sammála ég og Jónas, en ég kippi mér sjaldnast upp við það. Í ljósi efnisins, þá tel ég þó rétt að þegja ekki núna.

Ein af færslum Jónasar frá 17. september:

Persónuverndun glæpamanna
Gallinn við persónuvernd er, að hún er einkum í þágu glæpona. Reiðin út af birtingu skattskrár er upprunnin hjá fólki, sem vill ekki láta koma upp um sig. Gagnrýni á eftirlitsmyndavélar og fingraskanna á rætur sínar í óskum fólks að fela sig fyrir lögum og rétti. Heiðarlegt fólk þarf ekki að óttast skattskrá, eftirlitsmyndir, fingraför, ættir, kennitölu. Gegnsætt samfélag er í þágu venjulegs fólks. Aðrir ramba á jaðri samfélagsins, ofbeldismenn, fíkniefnasalar, skattsvikarar. Þeir vilja, að sem minnst sé um sig vitað. Róttækar hugmyndir um persónuvernd eru fyrst og fremst í þágu glæpamanna.

Ég hef rétt nýlokið við eina ritgerð þar sem ég fjalla um upplýsingasöfnun venjulegra fyrirtækja á persónuupplýsingum venjulegra neytenda - hvorugan hópinn ætla ég glæpamenn.
...

Fyrir ári og degi síðan sat ég í leigubíl á leiðinni til nýrra heimkynna í nýju landi sem ég hafði varla komið til áður.
Í dag tók ég lestina en enn á ný eru tímamót - ég er á leiðinni heim. Árið er liðið, prófin eru búin og ritgerðin í vinnslu.

Bráðum tekur alvaran við - og vonandi peningaframleiðslan líka.

Þetta er nokkurn veginn nákvæmlega það sem ég er að skrifa um af miklum móð þessa dagana.

Samkvæmt heimildum Orðsins á götunni eru dæmi um það meðal stórra fasteignafélaga á höfuðborgarsvæðinu að þeir komi fyrir staðsetningarbúnaði á erlendum konum sem sjá um þrif á eignum þeirra.

Þetta mun vera í þeim tilgangi að fylgjast með því hvar þær eru á hverjum tíma og hvort þær séu ekki örugglega að vinna ölllum stundum. Það er spurning hvort um sé að ræða búnað svipaðan þeim sem bandarísk fangelsisyfirvöld nota til að fylgjast með því hvort fólk sem dæmt eru í stofufangelsi sé heima hjá sér og sjá má hér á myndinni til hliða?

Ég geri fastlega ráð fyrir að hér sé um nýtingu á RFID tækninni að ræða, þar sem einstaklingurinn ber á sér t.d. lítið aðgangskort sem notað er til þess að ...

Jæja, þá er vonandi komið að nýjum áfanga í mínu lífi.
Ef Guð lofar, þá hef ég setið mitt síðasta próf í háskóla.

Framundan eru ritgerðaskrif - tvær meistaraprófsritgerðir á næstu 6 mánuðum, en mikið ótrúlega er það notarleg tilfinning að sjá fyrir endan á þessu brölti :)

En hvað svo?
Það er spurningin sem ég velti ...

Jæja, þá eru einkunnir komnar í hús og allir (les: ég) geta verið sáttir við sitt. Þá er bara næsta verk að bretta upp ermarnar og hella sér útí ritgerðarskrif næstu tvær vikurnar, þar til skólinn byrjar aftur.

Ég stefni að því að skrifa um örmerki (RFID) en er ennþá að finna vinkilinn á efninu. Skrifa örugglega meira um það síðar.

Eins og við vitum er það hverjum skóla mikilvægt að gera sér grein fyrir því hvernig nemendum hefur litist á námskeið sem þeir hafa tekið.

Háskólinn í Osló er þar engin undantekning, en þó verð ég að segja að þeir ganga örlítið lengra í spurningunum heldur en aðrir skólar sem ég hef svarað sambærilegum könnunum hjá.

Í viðleitni sinni til þess að athuga hvernig mér hefur liðið á námskeiðinu (eða hvað annað getur það verið), leggja þeir fram spurninguna sem ég setti sem fyrirsögn þessarar færslu:

What do you think about psychological learning environment of this course?

Sálfræðilegt námsumhverfi námskeiðsins er þeim greinilega mjög mikilvægt.
Og af því ég veit ekki einu sinni ...

Jæja, þá er fyrsti prófsteinninn um hversu dugleg ég hef verið á morgun. Próf í alþjóðlegum hugverkarétti klukkan tíu í fyrramálið.
Þeir eru annars alveg stórskrítnir norsararnir. Ég á að mæta kl. 8.30 - hálf níu - í book control og síðan byrjar prófið 90 mínútum síðar og stendur yfir í 6 - sex - tíma. Það fer bara allur dagurinn í prófið.

Það er svo sem ekkert verra. Ég hef verið dugleg að lesa, finn að tækniþekkingin mín skilar sér verðskuldað í auknum skilningi umfram samnemendur mína og lífið er almennt ljúft - ég er ekkert sérstaklega stressuð fyrir prófið, nema að því marki að ég ætla mér að sjálfsögðu A en ekki eitthvað þar fyrir neðan.

Það kemur svo í ljós í janúar hvort ég ber raunhæfar kröfur á herðunum eða ekki

Já það hefur sannanlega verið mikið að gera hjá mér í hittingi tengdum náminu. Það byrjaði á flottu Seminari þar sem fjallað var um nýja tilskipun ESB um skyldu fjarskiptafyrirtækja til þess að geyma umferðargögn, hvort heldur þau tengjast símtölum eða netnotkun. Á mælendaskrá voru bæði innlendir og erlendir aðilar, m.a. fulltrúi frá bresku ríkisstjórninni sem sagði frá framkvæmd laganna þar í landi. Bretar höfðu lögfest sambærilega löggjöf fyrir mörgum árum og hann sagði frá sjónarhorni yfirvalda um gagn slíkrar löggjafar. Persónuverndarfólkið í salnum var að sjálfsöðgu ekki fyllilega sömu skoðunar. ...

Syndicate content