ferðalög
Seminar, Workshop, Konferansje og Konferansje
Já það hefur sannanlega verið mikið að gera hjá mér í hittingi tengdum náminu. Það byrjaði á flottu Seminari þar sem fjallað var um nýja tilskipun ESB um skyldu fjarskiptafyrirtækja til þess að geyma umferðargögn, hvort heldur þau tengjast símtölum eða netnotkun. Á mælendaskrá voru bæði innlendir og erlendir aðilar, m.a. fulltrúi frá bresku ríkisstjórninni sem sagði frá framkvæmd laganna þar í landi. Bretar höfðu lögfest sambærilega löggjöf fyrir mörgum árum og hann sagði frá sjónarhorni yfirvalda um gagn slíkrar löggjafar. Persónuverndarfólkið í salnum var að sjálfsöðgu ekki fyllilega sömu skoðunar. ...
Í Köben, í Köben, í kóngsins Köbenhavn
(Með lagi Stuðmanna)
Í Köben, í Köben, í kóngsins Köbenhavn
... (lallalalllalllalalla :)
Ég var sem sagt í Kaupmannahöfn stóran hluta síðustu viku.
Í Kaupmannahöfn í síðustu viku var norræn ráðstefna um upplýsingatæknilögfræði og ég framlengdi dvölina til sunnudags. Lóa kom með mér yfir og mamma kom frá Íslandi til að vera með henni á meðan ráðstefnan stóð.
Hér á næstu dögum munu birtast frásagnir af ráðstefnunni (og frítímanum) og það sem að öðru leyti hefur á daga mína drifið.
Það sem á daga mína hefur drifið - stutt yfirlit
Jæja, rumpum þessu af. Mér finnst alveg ótækt að vera ekki búin að segja frá öllum þessum stórskemmtilegu (og þessu eina leiðinlega) atvikum sem á daga mína hafa drifið frá því ég fækkaði mjög dagbókarfærslunum í lok ágústmánaðar ...
Jæja, þá er augað loks orðið nægilega gott til þess að maður geti farið að bæta nýjum frásögnum í sarpinn.
Ég er sem sagt búin að dæla 6-8 dropum af steralyfjum í augað á mér á dag í níu daga, auk þess að setja deyfilyf og smyrsl í augað reglulega. Nú þarf ég bara að ...
Osló hefur tekið á móti okkur með opinn faðminn, gestrisni leigusalanna hefur komið mikið á óvart og veðurblíðan í síðustu viku var langt umfram væntingar. En nú er greinilega tekið að hausta og lífið heldur áfram sinn vanagang, án sólar og með miklum íslenskum vindi.
Þegar við það bættist að vatnið féll af himnum ofan í morgun eins og Guðunum væri borgað fyrir það, var tekin sú ákvörðun að íslenskum sið að fresta viðburðum vegna veðurs - IKEA ferðinni var frestað til morguns.
Þess í stað héldum við seinnipartinn áleiðis í matarinnkaup, ...
Það skal ég segja ykkur að á þessum heitustu og verstu tímum á ég bara hreint út sagt erfitt með að halda mig í mörgum fötum. Það er rétt þegar farið er í búðina eða von er á gestum sem maður klæðist sómasamlega, því hitinn er svo mikill fyrir svona litla íslenska sál að ég svitna óheyrilega við minnstu hreyfingu, sem verður fyrir vikið enn verri í buxum.
Sem betur fer er maður á efstu hæð og nágrannarnir sjá lítið til mín :) ...
Ég fór í IKEA í gær, sem ætti nú ekki að vera í frásögur færandi því ég fer oft í IKEA heima.
Einhvern veginn var þetta nú samt allt önnur upplifun. Í fyrsta lagi, þá er IKEA staðsett í útjaðri borgarinnar sem þýddi að ég þurfti að taka strætó, reyndar rútu. Það kostaði sem betur fer bara einn strætómiða í rútuna og síðan var haldið af stað. Ég fór að heiman uppúr tvö af því ég ætlaði að reyna að finna út úr því hvar 'gratis' IKEA strætóinn stoppaði en það tókst ekki, þannig að ég tók rútuna kl. sex mínútur í þrjú og borgaði mínar 20 norsku krónur fyrir. ...
Jæja, ferðalagið mikla er þá hafið. Hófst reyndar fyrir sólarhring síðan þegar ég steig um borð í flugvélina áleiðis til Noregs. Þegar við lentum á Gardemoen var orðið ljóst að Oslo tekur alltaf á móti mér á sama hátt - með hellirigningu. Í leigubílnum á leiðinni[1] að íbúðinni fékk ég sambærilega rigningu og var þegar ég kom fyrir mánuði síðan (algjört úrhelli) og ég prísaði mínum sæla að vera amk. innandyra í þetta skiptið.
Það stytti þó að lokum upp og ég gat stokkið útí búð til að kaupa örlítinn matarbita og grundvallarhreinlætisvörur fyrir fyrsta daginn, sem ég hugðist samt nýta meira til hvíldar en nokkurs annars. Ég átti þó alla vegana í ískápnum eina stóra jógúrt, lítra af appelsínusafa, íslenska vatnsflösku og smjörstykki og í frystinum einn poka af Hatting brauði. Já og svo keypti ég handsápu og klósettpappír.
...
Íbúðin mín lítur í augnablikinu út eins og hún sé stödd mitt í múslimsku hverfi Beirútborgar fremur en í rólegu og grónu hjarta Kópavogs. Það eru þrjúhundruðogsjötíu kassar á fleygiferð um alla íbúð, ýmist á leið inn í geymslu eða út úr henni og enn fleiri sem bíða þess að verða fluttir í skip.
Sá hluti búslóðarinnar sem tekinn verður með, fer sem sagt í skip eftir sex daga, afgangurinn fer í geymsluna (ég þakka guði og karli föður mínum fyrir forsjónina með því að hafa hætt við að fylla í rýmið undir bílskúrnum, eins og upphaflegar teikningar gerðu ráð fyrir hér um árið).
Breytingar framundan
Eins og lýðnum má vera ljóst verða breytingar hjá mér í byrjun ágúst nk. þegar ég flyt tímabundið til Osló til þess að slá lokahöggið í námsbrölti mínu.
Ég hef minnst á það áður að ég er að setjast á norskan skólabekk að nema upplýsinga- og samskiptatæknilögfræði.
...
