Starf

30 Jul 2004 | elfur

Auðkenni, 2007-.

  • Lögfræðingur
  • Undirbúningur og samningagerð vegna innleiðingar rafrænna skilríkja.

H:N markaðssamskipti, 2004-2007.

  • Lögfræðilegur ráðgjafi í málum á sviði óréttmætra viðskiptahátta, hugverkaréttar, samkeppnisréttar og viðskiptaréttar.
  • Ráðgjafi upplýsingatæknimála. Þarfagreining og innleiðing.
  • Undirbúningur, skipulagning og innleiðing ítarlegs verkumsjónarkerfis og innri vefs. Uppfærsla verk- og fjárhagsbókhalds. Sérsnið greiðsluáætlunar og greiðslueftirlitskerfis í Excel.
  • Afleysing fjármálastjóra.

Íbúðalánasjóður, 2005-2006.

  • Sérfræðingur á þróunar- og almannatengslasviði Íbúðalánasjóðs, með skóla.
  • Skilgreining og undirbúningur á markvissri vinnslu á sviði viðskiptagreindar. Þarfagreining og skipulagning nýs vefsvæðis ÍLS.

Frjáls verslun, 2005.

  • Upplýsingasöfnun fyrir Frjálsa verslun sumarið 2005.

(skrifaði lokaritgerð í viðskiptafræði sumarið 2004)

Háskólinn í Reykjavík, 2003.

  • Stundakennari í námskeiðinu upplýsingatækni og lögfræðiupplýsingar í rafrænum miðlum. Kenndi á helstu forrit sem nýtast í laganámi.
  • Vefritstjóri lagadeildar HR í hlutastarfi með skóla.
  • Þarfagreining, hönnun, skipulagning og efnisöflun nýs vefsvæðis fyrir lagadeildina sem sett var upp sumarið 2003, auk umsjónar með viðhaldi síðunnar í framhaldi uppsetningar, þar til deildarfulltrúi var ráðinn.

Breiðablik ungmennafélag, 2001-2003.

  • Undirbúningur, skipulagning og innleiðing Navision Attain sem fjárhagsbókhalds allra deilda Breiðabliks í hlutastarfi 2002-2003.
  • Framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar 2001-2002. Dagleg umsýsla; fjármálastjórn, áætlanagerð, útgáfa reikninga, innheimta, tekjuöflun, undirbúningur leikja og samskipti við sérsambönd, fjölmiðla og iðkendur.

Hugvit, 1999-2001.

  • Starfsmaður og síðan hópstjóri veflausnahóps vefdeildar Hugvits frá 1999: Unnið með verkefnastjórum og ráðgjöfum að undirbúningi og uppbyggingu vefja. Móttaka verkefna og framleiðslustýring þeirra. Gæðaeftirlit, forðastýring og önnur stýring starfsmanna hópsins.
  • Vinna við undirbúning, skipulagningu og innleiðingu Navision Financials sem verkbókhalds Hugvits hf. í janúar 2001.

Skattrannsóknarstjóri ríkisins, 1998 og 1999.

  • Starf í tengslum við laganám. Unnið með helstu aðferðir og aðgerðir við rannsókn á meintum brotum gegn skattalöggjöfinni. Ritun og uppsetning kröfu- og greinargerða og kærubréfa í málum sem senda átti í refsimeðferð.

HÉR&NÚ auglýsingastofa, 1990-1999.

  • Fjármálastjórn og bókhald: Tímabundin fjármálastjórn, afleysing og innsetning nýrra fjármálastjóra. Áætlanagerð og leiðbeiningar, afleysingar og aðstoð með hléum 1990-1999.
  • Undirbúningur, skipulagning og innleiðing Navision Financials sem fjárhags- og verkbóhald HÉR&NÚ haustið 1997.

Sparisjóður Kópavogs, 1995-1996.

  • Sumarafleysing í innra eftirliti 1995 og 1996.
  • Dagleg yfirferð á skráningu og formgildi skuldabréfa, víxla og ávísana- og hlaupareikninga.
  • Skráning, útsending, upplýsingagjöf og leiðbeiningar við innheimtuþjónustu.

Breiðablik ungmennafélag, 1994-1996.

  • Færsla fjárhagsbókhalds fyrir aðalstjórn Breiðabliks 1994-1996 í hlutastarfi.

Kópavogsbær, 1993.

  • Stofnaði og mótaði skrifstofustarf í áhaldahúsi Kópavogs.
  • Færsla verkbókhalds og útskrift reikninga, aðstoð við ráðningu og skipulagningu starfa sumarstarfsfólks, undirbúningur launaútreiknings. Starfsmenn áhaldahússins voru hátt á þriðja hundrað þegar mest var.