Sagan endurtekur sig ... 21 ári síðar

3 Sep 2005 | elfur

Það er ótrúlegt að hugsa til þess að það eru 21 ár síðan ég var 13 ára, nýflutt í Kópavoginn utan af landi að hefja nám í Þinghólsskóla.

Það er hins vegar ennþá ótrúlegra að í dag, 21 ári síðar, er dóttir mín að hefja nám á efsta stigi grunnskóla (gaggó) - í Þinghólsskóla af öllum skólum (sem heitir reyndar Kársnesskóli við Kópavogsbraut núna).

Hún er ekki nýflutt í Kópavoginn enda hefur hún búið þar alla æfi, en hún er engu að síður að hefja nýjan áfanga í náminu, ekki lengur undir handleiðslu eins kennara sem leiðir þau í gegnum völundarhúsið, heldur er þeim nú sleppt lausum, sækja tíma í hinum og þessum stofum sem þau bera sjálf ábyrgð á að vera mætt í á réttum tíma.

...djís já

Kolbrún (not verified) | 07.09.2005

Ég hafði ekki hugsað út í það að Unnur er einmitt í raun og veru á sama stigi. Hún er í gaggó, hún er í 15-16 fögum og þarf einmitt að fara sjálf á milli stofa. Auk þess sem hún er náttúrulega í nýju landi, nýjum skóla og allt það. En henni gengur vel. Fór á "parent/teacher evening" í gærkvöld og hitti tvær sem kenna henni og þær voru mjög ánægðar með hana. Og ég líka auðvitað.

Þinghóll sælla minninga (og ekki svo sælla)

Hún á afmæli í dag, hún

Kolbrún (not verified) | 15.09.2005

Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag, hún á afmæli hún Elfur. Hún á afmæli í dag!! Til hamingju með daginn!

 

Skrá ný ummæli

Innihald þessa svæðis verður ekki sýnilegt almenningi.
  • Leyfð HTML merki: <a> <em> <strong> <cite> <code> <ul> <ol> <li> <dl> <dt> <dd><blockquote>
  • Línur og málsgreinar skiptast sjálfkrafa.
Frekari upplýsingar um sniðmöguleika