Opið hús: 11. júní
Jæja, það er komið að útskrift, atburðinum sem gefur mér kvittun fyrir streði síðustu ára.
Af því tilefni verður opið hús á Skjólbrautinni. Ef þú þekkir mig og vilt koma og fagna þessum tímamótum með mér, vertu velkomin(n). Dagurinn er 11. júní n.k. og húsið opnar kl. 17.00 og lokar seint og síðar meir.
Í kaupbæti, skiptir mamma um áratug þann 24. maí 2005 og tekur á móti heillaóskum á sama stað og sama tíma.
Ég hlakka til að sjá þig.
/elfur
Hamingjuóskir
Sæl Elfur,
ég datt inn á síðuna þína og sá að þú ert að útskrifast á morgun og langar mig að óska þér til hamingju með það.
kv.
Ási (fv. skólabróður í Neskaupstað)
Kærar þakkir
Takk fyrir bæði tvö. Það er ótrúlega gaman að vera búin. Skrítið en skemmtilegt - tvímælalaust.
kveðja
Elfur

Hamingjuóskir
Innilega til hamingju með að vera búin í prófum og vera búin með allt heila klabbið :)
Kv.
Heiða fyrrverandi skólasystir