Nýr vefur, betri hýsing og fleira

27 Mar 2005 | elfur

Eins og glöggir lesendur hafa tekið eftir þá hefur elfur.is tekið stakkaskiptum. Ég tók þá ákvörðun að sameina el.is, elfur.is og elfur.com og stefni að því að bæta við enskri útgáfu af helstu atriðum sem hér eru fram sett.

Vefurinn er gerður í Drupal, sem er nálægt því að verða besti vinur minn enda um ótrúlega öflugt vefumsjónarumhverfi að ræða, og í ofanálag þá er það open source.

Það er fleira nýtt en útlitið og bakendinn, því ég flutti hýsinguna á eigin vefþjón, sem er miklu ódýrari kostur. Fyrir skid og ingenting á mánuði hef ég 80GB harðan disk, 1200GB gagnaflutningaheimild, get hýst ótakmarkað magn af vefjum og hef fulla stjórn á öllu því sem snýr að uppsetningu, hvort heldur sem er á gagnagrunnum, vefþjónum, pósthólfum eða spamforritum. Svo ekki sé minnst á að lítið mál er að hýsa smávefi vina og kunningja - suma gegn gjaldi og aðra gegn greiðum.

el.is verður tekið til annarra nota í framtíðinni, en fyrst um sinn þá vísar sú vefslóð einnig hingað.

Smart

Kolbrún (not verified) | 02.04.2005

Einstaklega vel heppnuð hönnun hjá þér.
Til lukku.

 

Skrá ný ummæli

Innihald þessa svæðis verður ekki sýnilegt almenningi.
  • Leyfð HTML merki: <a> <em> <strong> <cite> <code> <ul> <ol> <li> <dl> <dt> <dd><blockquote>
  • Línur og málsgreinar skiptast sjálfkrafa.
Frekari upplýsingar um sniðmöguleika