Nútíma húsmóðir

12 Jan 2000 | elfur

Haltu áfram að koma vel fram við manninn þinn


  1. Hafðu matinn tilbúin, vertu BÚIN að panta borð fyrirfram. Ef dagurinn þinn er of annasamur skildu þá eftir skilaboð á talhólfinu hans um hvar þú vilt borða og kl. hvað. Þetta sýnir honum að dagurinn þinn hafi verið ömurlegur og gefur honum færi á að gera eitthvað til að létta þér lund.
  2. Vertu vel snyrt - smá dekur á snyrtistofu ætti að gera galdurinn, það frískar þig upp og kemur í veg fyrir að þú verðir pirruð í hvert skipti sem hann opnar munninn. (ekki gleyma að borga með Gull-kortinu HANS)
  3. Hafðu heimilið snyrtilegt - hringdu í heimilishjálpina og segðu henni að draslið og dótið sem börnin skildu eftir á gólfinu megi fara í kassa niðrí kjallara merkt RAUÐI KROSSINN - HJÁLPARSTARF
  4. Undirbúðu börnin - sendu börnin inn í herbergi til að horfa á video eða spila Nintendo, þau eru nú einu sinni bæði hans frá fyrri hjónaböndum.
  5. Dragðu úr hávaða - ef svo vill til að þú ert heima þegar hann kemur heim vertu þá inni á baðherbergi með hurðina læsta
  6. Ekki byrja á því að kvarta - leyfðu honum að kvarta fyrst, þannig fá þínar kvartanir meiri athygli og eru honum ferskari í minni við kvöldverðarborðið. EKKI kvarta ef hann er of seinn í matinn, segðu honum bara hvar afgangana er að finna og að þú hafir skilið eftir óhreina leirtauið í vaskinum fyrir hann til að þvo.
  7. Hlúðu að honum - segðu honum hvar hann getur fundið teppi ef honum er kalt, það sýnir að þér er verulega annt um hann.
  8. Hlustaðu á hann - en gættu þess þó að leyfa honum aldrei að eiga síðasta orðið
  9. Gerðu honum kvöldið þægilegt - ekki kvarta þó hann fari ekki með þig út að borða eða út á meðal fólks, farðu með vinkonum þínum og slettu ærlega úr klaufunum og ekki gleyma að borga með Gull-kortinu hans... kynntu honum rækilega merkingu orðsins STELPUKVÖLD!


nútímakonan svarar fyrir sig.
[ þetta er óþarfi ]

 

Skrá ný ummæli

Innihald þessa svæðis verður ekki sýnilegt almenningi.
  • Leyfð HTML merki: <a> <em> <strong> <cite> <code> <ul> <ol> <li> <dl> <dt> <dd><blockquote>
  • Línur og málsgreinar skiptast sjálfkrafa.
Frekari upplýsingar um sniðmöguleika