Ég biðst forláts / I do apologise
Í einskærum klaufaskap tókst mér hið ómögulega. Ég eyddi út af servernum öllum pósti sendum til mín í dag, sunnudaginn 24. júní 2007. Nánar tiltekið öllum pósti sendum eftir kl. 4 í morgun (að íslenskum tíma).
Vissulega var þetta að mestu leyti bara ruslpóstur, en ég hef ekki hugmynd um hvort ég eyddi einhverju sem átti alls ekki skilið að fara í ruslið.
Þannig að ef þú sendir mér tölvupóst eftir kl. 4 aðfararnótt sunnudagsins og fyrir kl. 19.30 að kvöldi sama sunnudags (allt að íslenskum tíma), vinsamlegast ekki reiðast því að ég svara ekki, því ég sá ekki póstinn.
Out of pure stupidity I deleted all email sent to me between 4 AM and 7:30 PM today (GMT). If you sent me any email during that time, please don't get offended if I failed to reply, as I deleted it before having that option.
Please just resend the email :)
Þúsund þakkir amma :),
Þúsund þakkir amma :), datt ekki í hug að þið gleymduð því :)
Hvað varðar pakkann þá getur hann bara verið hjá ykkur áfram :P
Það er frábært að þið hafið það gott :)
Hlakka svo mikið til að hitta ykkur aftur!
Þúsund kossar og knús frá Noregi :):**

Til Ragnheiðar Lóu
Elsku Ragnheiður Lóa og Elfur
Ragnheiður Lóa okkar innilegustu hamingjuóskir með afmælið um daginn amma var ekki búin að gleyma því! Glæsilegt að þú kemst í M R Afmælispakkinn þinn er ennþá á Akureyri svo ég veit ekki hvort ég á að senda hann í Skjólbrautina eða bíða þar til þú kemur heim þú mátt láta mig vita. Við afi vorum að koma frá Svíþjóð þar sem við heimsóttum Gretar bróður minn og hans stóru fjölskyldu það var mjög góð ferð. Hjartans bestu kveðjur til ykkar
Amma og afi á Akureyri