Stórgáfað ungviði
Dóttirin tók þrjú samræmd próf í síðasta mánuði í sendiráði Íslands í Osló. Gert vegna þess að við höfum verið að íhuga möguleikann að hún fari í menntaskóla strax í haust, ári fyrr en áætlanir hafa gert ráð fyrir.
Og einkunnirnar bárust okkur í gær: 9 í ensku og 8,5 í íslensku og stærðfræði.
Geri aðrir betur, utan skóla með tveggja mánaða undirbúningi.
Það er óþarfi að segja frá því hversu óheyrilega stolt móðir ég er :)
Tvöfalt takk :)
Ég kem örugglega niður úr skýjunum einhvern tíma í næstu viku :)
Tja hún er bara eins og
Tja hún er bara eins og aðrir í ættinni. Stór gáfuð :Þ

Til lukku
Og til hamingju með afmælið hennar að sjálfsögðu. Þú mátt vel vera stolt móðir.