Fólk sem þarf að gefa upp allar sínar tekjur
Eins og svo oft áður sit ég við og les bloggfærslur þeirra sem helst virðast ræða pólitíkina á Íslandi þessa dagana. Við lestur athugasemda við pistil Péturs Gunnarssonar um veru VG í villta vinstrinu rakst ég á þessa ótrúlegu setningu:
fólk sem þarf að gefa upp allar sínar tekjur, t.d. fólk sem vinnur hjá hinu opinbera (leturbr. mín).
Þarna var fullorðinn einstaklingur að ræða það sem sjálfsagðan hlut að fólk gæfi ekki upp til skatts allar sínar tekjur!
Er það virkilega sjónarmið einhverra Íslendinga að það sé eðlilegt að gefa ekki upp tekjur sínar til skatts að hluta eða öllu leyti? Er það virkilega þannig að svört vinna á uppá borðið hjá landanum á 21. öldinni?
