Seminar, Workshop, Konferansje og Konferansje

22 Oct 2006 | elfur

Já það hefur sannanlega verið mikið að gera hjá mér í hittingi tengdum náminu. Það byrjaði á flottu Seminari þar sem fjallað var um nýja tilskipun ESB um skyldu fjarskiptafyrirtækja til þess að geyma umferðargögn, hvort heldur þau tengjast símtölum eða netnotkun. Á mælendaskrá voru bæði innlendir og erlendir aðilar, m.a. fulltrúi frá bresku ríkisstjórninni sem sagði frá framkvæmd laganna þar í landi. Bretar höfðu lögfest sambærilega löggjöf fyrir mörgum árum og hann sagði frá sjónarhorni yfirvalda um gagn slíkrar löggjafar. Persónuverndarfólkið í salnum var að sjálfsöðgu ekki fyllilega sömu skoðunar.

Næst var Workshop um viðskiptaleyndarmál. Breskur prófessor frá Cambridge háskóla flutti aðalkynninguna en á staðnum voru einnig innlendir (og erlendir) fagaðilar. Umræðurnar voru mjög áhugaverðar og ég var svo heppin að sitja til borðs með prófessornum frá Cambridge yfir hádegisverði. Fulltrúi Svía hafði líka frá áhugaverðum hlutum að segja, þar sem hann greindi frá sænskri löggjöf um efnið, sem er töluvert framsæknari en annars staðar.

Síðan var það Kaupmannahöfn og ég er nokkuð viss um að þar voru samankomnir flestir helstu norrænu aðilar sem starfa á sviði upplýsingatækniréttar eins og hann verður víðtækast skilgreindur.
Þarna voru Mads Bryde Andersen, Peter Blume, Peter Seipel og að sjálfsögðu prófessorinn minn, Jon Bing - fyrir utan alla hina sem ég þekki ekki nægilega en höfðu samt frá mörgu áhugaverðu að segja . Við borðuðum á Noma, hinum rómaða norræna veitingastað sem er í pakkhúsinu við hliðina á íslenska sendiráðinu og það var kokteill á dönsku lögfræðistofunni sem var aðalstyrktaraðili ráðstefnunnar. Þetta var ferð sem var þess virði - og rúmlega það.

Nú síðast var síðan konferansje hér í Osló þar sem fjallað var um stjórnhætti netsins (internet governance). Enn voru þar stórir aðilar sem fluttu áhugaverða fyrirlestra um efni sem ég hef mikinn áhuga á. Einna helsta má nefna Lawrence Solum prófessor við Háskólann í Illinois, Håkon Wium Lie, sem skrifaði CSS standardinn árið 1994 og Harald Tveit Alverstrand, sem hefur unnið mikið með IETF (the Internet Engineering Task Force).

Ég hugsa að ég hafi sjaldan, ef nokkurn tíma "droppað" eins mörgum frægum nöfnum og hér bera við, en það verður bara að hafa það, ég lofa að gera þetta ekki mjög oft í viðbót :)

Þetta hafa sem sagt verið áhugaverðir tímar hér í Noregi og ég styrkist sífellt í trú minni á að ákvörðunin um námið hér hafi verið *mjög* góð. Ég kynnist nýju fólki, nýjum hugmyndum og víkka sjóndeildarhringinn svo um munar. Bankareikningurinn tekur vissulega skakkaföll, en það er í góðu lagi, ég vinn það tvímælalaust upp síðar.

 

Skrá ný ummæli

Innihald þessa svæðis verður ekki sýnilegt almenningi.
  • Leyfð HTML merki: <a> <em> <strong> <cite> <code> <ul> <ol> <li> <dl> <dt> <dd><blockquote>
  • Línur og málsgreinar skiptast sjálfkrafa.
Frekari upplýsingar um sniðmöguleika