Augað loks orðið betra

14 Sep 2006 | elfur

Jæja, þá er augað loks orðið nægilega gott til þess að maður geti farið að bæta nýjum frásögnum í sarpinn.
Ég er sem sagt búin að dæla 6-8 dropum af steralyfjum í augað á mér á dag í níu daga, auk þess að setja deyfilyf og smyrsl í augað reglulega. Nú þarf ég bara að setja 5 dropa í augað á dag næstu vikuna og svo fjóra á dag vikuna þar á eftir!
Batnandi mönnum er best að lifa.

Annars er allt gott að frétta. Engir nýir IKEA viðburðir hafa bæst við fyrri upplifanir (eða var ég kannski ekki búin að segja ykkur frá því að við þurftum að bíða næstum því klukkutíma eftir afhendingu á vörunum á lagernum í þriðju ferðinni?). Skólinn er kominn á blússandi siglingu og Ragnheiður Lóa loksins að byrja í ballett.

Reglulegra uppfærslna á þessum vef er nú aftur að vænta, sérstaklega þegar augað er komið í samt lag aftur.
Svo ekki sé minnst á alla þá hluti sem ég á eftir að segja ykkur um atburði liðinna daga. Fylgist því vel með :)

yfir og út.

til hamingju

Kollý (not verified) | 16.09.2006

til hamingju með daginn í gær

takk takk

elfur | 17.09.2006

Kærar þakkir :)

3 .. 5 ... verð að muna að skrifa 3 5 :)

kv.elfur

 

Skrá ný ummæli

Innihald þessa svæðis verður ekki sýnilegt almenningi.
  • Leyfð HTML merki: <a> <em> <strong> <cite> <code> <ul> <ol> <li> <dl> <dt> <dd><blockquote>
  • Línur og málsgreinar skiptast sjálfkrafa.
Frekari upplýsingar um sniðmöguleika