Sumt fólk er misgáfað
Ég sat makindalega í sófanum mínum og gerði grín að nágrönnum mínum sem létu bjánalega á svölunum sínum: Sumt fólk er svo vitlaust sagði ég og Lóa sá sérstaka ástæðu til þess að leiðrétta mig: Endurorðun: Sumt fólk er misgáfað!
Það er alveg rétt Lóa mín, sumt fólk er misgáfað, það fer allt eftir því hvað það er búið að læra íslensku lengi þann daginn hversu vel því tekst að koma heillegum setningum út úr sér :)
Annars er ótrúlegt hvað maður bara hættir að blogga þegar það koma gestir. Mamma og pabbi komu á þriðjudag og ég eyddi tímanum í eitthvað allt annað en tölvuna. Við löbbuðum um bæinn á þriðjudag og skoðuðum í nokkrar búðir. Lóa fékk þessar líka fallegu peysur frá ömmu sinni og keypti sé meira Snoopy dót fyrir gjafapeninga.
Á miðvikudag var enn ein ferðin farin í IKEA, enda rigning og leiðinlegt veður og enginn vilji til annarra hluta en inniveru. Þau skruppu síðan yfir til Kaupmannahafnar á fimmtudag og eru væntanleg til baka hingað í kvöld. Sem þýðir að ég sleppi fyrsta Íslendingahittingi vetrarins ojæja, þeir verða örugglega fleiri.
Best að fara að koma sér á járnbrautarstöðina til þess að taka á móti þeim. Yfir og út.
