Hasar stórborgarinnar

14 Aug 2006 | elfur

Osló hefur tekið á móti okkur með opinn faðminn, gestrisni leigusalanna hefur komið mikið á óvart og veðurblíðan í síðustu viku var langt umfram væntingar. En nú er greinilega tekið að hausta og lífið heldur áfram sinn vanagang, án sólar og með miklum íslenskum vindi.
Þegar við það bættist að vatnið féll af himnum ofan í morgun eins og Guðunum væri borgað fyrir það, var tekin sú ákvörðun að íslenskum sið að fresta viðburðum vegna veðurs - IKEA ferðinni var frestað til morguns.

Þess í stað héldum við seinnipartinn áleiðis í matarinnkaup, sem er enn minna í frásögur færandi en hinar miklu ævintýraferðir landans í IKEA. Fátt mikilvægt ber á daga okkar í þessari þriggja mínútna göngu að matvöruversluninni, þar sem við reyndar göngum uppá hið margfræga Alexander Kiellands plass.

Tilefni þessarar færslu gerðist hins vegar miklu nær en það. Þetta byrjaði allt þegar við kölluðum á lyftuna uppað 11. hæð spenntar að vita hvort hún hefði verið þrifin eftir gleði helgarinnar (fjörið er á 10. hæð segir dóttir mín). Okkur til mikillar ánægju reyndist svo vera raunin og við stigum inn og höfðum sko nóg að ræða í þessari lyftuferð, hrein lyfta, hreinlæti í stigagangi og ég veit ekki hvað og hvað.

Skyndilega stöðvar lyftan á 4. hæð, lyftuhurðin opnast og við okkur blasir myndarlegur dökkhærður maður í dökkbláum einkennisbúningi með gulum stöfum: "går du ned?" spurði hann og ég svaraði kát: "ja, vi går ned". "Vi venter nok" sagði maðurinn snöggt til baka og ég lokaði lyftuhurðinni og við héldum áfram niður á fyrstu hæð.

Þetta hefði allt verið eitthvað svo óttarlega þægilegt samtal á minni bjöguðu norsku, ef ekki hefðu staðið fyrir aftan hann einir þrír eða fjórir fullklæddir sérsveitarmenn lögreglunnar, með hjálma, kylfur og fleiri hjálpartæki - þeir biðu eftir næstu ferð af einskærri tillitssemi.

Við Lóa höfðum sko ærið nóg að tala um á leiðinni í og úr búðinni og ljóst er að íbúum fjórðu hæðar á Waldemars Hage 2 verður gefinn góður gaumur hér eftir.

:)

Lóa (not verified) | 14.08.2006

já veistu.. þetta var soldið mjög skrítin ferð í búðina ='D en já.. ég hélt að stuðið væri á 10. hæð.. en kannski bara líka stuð á 4. .. maður spyr sig =Þ ;)

 

Skrá ný ummæli

Innihald þessa svæðis verður ekki sýnilegt almenningi.
  • Leyfð HTML merki: <a> <em> <strong> <cite> <code> <ul> <ol> <li> <dl> <dt> <dd><blockquote>
  • Línur og málsgreinar skiptast sjálfkrafa.
Frekari upplýsingar um sniðmöguleika