Til hvers þarf maður buxur?

7 Aug 2006 | elfur

Það skal ég segja ykkur að á þessum heitustu og verstu tímum á ég bara hreint út sagt erfitt með að halda mig í mörgum fötum. Það er rétt þegar farið er í búðina eða von er á gestum sem maður klæðist sómasamlega, því hitinn er svo mikill fyrir svona litla íslenska sál að ég svitna óheyrilega við minnstu hreyfingu, sem verður fyrir vikið enn verri í buxum.
Sem betur fer er maður á efstu hæð og nágrannarnir sjá lítið til mín :)

Klukkan tvö í dag mældist hitinn tuttuguogsjö gráður á selsíus! Ef það væri nú bara sundlaug í garðinum ...

Fyrir ykkur sem fannst þið kannast við það, þá er fyrirsögnin tilvísun í heiti gamallar plötu með Sniglabandinu, "Til hvers þarf maður konur?", sem aftur er tilvísun í ákveðinn ónefndan mann.

Bestu kvedjur

Karen Maria (not verified) | 07.08.2006

Hae ho,

tetta hljomar allt afskaplega vel. MMMMmmmmmm eg vildi oska ad tad vaeri 27 stiga hiti her i Austurriki. Tad hefur rignt sidan daginn eftir ad eg kom og ekki bara rignt heldur er hitinn adeins rett um 12 gradur og vindurinn blaes heldur hraustlega.

Eg sem tok bara med mer einar sidar buxur og eina langerma peysu.......svo bara sumarfot :/ Ef tu hefur ekki enn torf fyrir buxurnar tinar ta mattu senda taer hingad yfir til meginlandsins.

XXX KM

Þú mátt eiga þær :)

elfur | 08.08.2006

Já, það er ýmist í ökkla eða eyra :)
Annars er sem betur fer ekki eins hlýtt í dag og í gær ... af því í dag þarf ég að vinna svo mikið, eins og maður svitni ekki nægilega án þess að hreyfa sig mikið ... oh well.

Ég veit að veturinn kemur bráðum, og þá vil ég örugglega fá buxurnar mínar aftur.

bara eitthvað =Þ

Lóan litla:) (not verified) | 09.08.2006

hehe langaði bara að segja að það er búið að vera rosalega gaman hjá mér núna á Akureyri þrátt fyrir smá heimþrá í gær :$ og hlakka til að koma í hitann til þín (vona að hann verði ennþá) ;).. en já bara hlakka til að sjá þig! :******* kossar og knús

-LitlaLóa;3333

Bara eitthvað, já :)

elfur | 09.08.2006

Bara eitthvað, já :)
Ég hlakka líka mikið til að þú komir út. Ég held það sé engin hætta á öðru en að hitinn verði ennþá, hann er víst búinn að vera meira og minna í allt sumar, þó svo ég sé reyndar alveg sátt við það að í dag er hálf-sólarlaus dagur :)

Mamma.

 

Skrá ný ummæli

Innihald þessa svæðis verður ekki sýnilegt almenningi.
  • Leyfð HTML merki: <a> <em> <strong> <cite> <code> <ul> <ol> <li> <dl> <dt> <dd><blockquote>
  • Línur og málsgreinar skiptast sjálfkrafa.
Frekari upplýsingar um sniðmöguleika