Kynnisbréf
Ég undirrituð, Elfur Logadóttir, legg hér með fram almennt kynnisbréf. Ég er 36 ára lögfræðingur, með fullnaðarpróf í lögum frá Háskólanum í Reykjavík og meistaragráðu í upplýsinga- og samskiptatæknilögum (LLM gráðu) frá Háskólanum í Osló. Einnig hef ég lokið prófi í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík.
Meistaranámið í Osló, er sérhæft framhaldsnám í upplýsinga- og samskiptatæknilögum þar sem lögð er áhersla á lagalegt umhverfi upplýsingatækninnar frá sjónarhóli fjögurra mismunandi sviða: Rafrænna viðskipta; persónuverndar; fjarskiptaréttar og stjórnhátta netsins; og alþjóðlegs hugverkaréttar. Í lokaritgerðinni, sem fékk hæstu einkunn, kannaði ég lagaleg áhrif örmerkinga (RFID) á vernd og nýtingu persónuupplýsinga, sérstaklega á smásölumarkaði.
Örmerkingar, sem kallaðar hafa verið strikamerki á sterum, er gömul njósnatækni sem hefur verið þróuð í ódýran og öruggan valkost við auðkenningu og gefur kost á miklum mun öflugra og nákvæmara umsjónarkerfi fyrir vörur, skjöl, fjármuni og jafnvel fólk. Mikilvægt er því að tryggja að á sama tíma og tæknin getur leitt til gríðarlegrar hagræðingar hjá fyrirtækjum verði ekki dregið úr virðingu fyrir persónuvernd og friðhelgi einkalífsins.
Meistaranámið var á vegum rannsóknarseturs í upplýsingatækni innan lagadeildar Háskólans í Osló (Norwegian Research Center for Computers and Law). Rannsóknarsetrið er eitt það elsta og virtasta á þessu sviði í heiminum og prófessor dr. Jon Bing, sem hefur verið frumkvöðull setursins frá upphafi, er einn af virtustu fræðimönnum heims á sviði upplýsingatækniréttar.
Meistaranámið við Háskólann í Reykjavík er nám til fullnaðarprófs í lögum þar sem ég hef lagt áherslu á fög sem tengjast upplýsinga- og samskiptatæknirétti, þar á meðal fjölmiðlarétt, fjarskiptarétt og starfsnám hjá Póst- og fjarskiptastofnun. Lokaritgerðin fjallaði um umferðargögn á sviði fjarskiptaréttar í tengslum við persónuvernd og friðhelgi einkalífs. Umferðargögn og lögbundin varðveisla þeirra hafa nú þegar haft mikil áhrif á rekstrarumhverfi innlendra þjónustuveita og annarra milligönguaðila.
Ég hef, m.a. í gegnum nám mitt, lært mikið um samskipti og samvinnu í hópi og mikilvægi góðrar tímastjórnunar, bæði sem hluta af kennsluefni en fyrst og fremst sem þátttakandi og oftar en ekki stjórnandi hópverkefna sem leyst eru á hverri önn. Í lokaritgerð minni í viðskiptafræði, sem fékk hæstu einkunn, fjallaði ég um lagalegar takmarkanir á viðskiptalegu tjáningarfrelsi í auglýsingum.
Ég hef nú þegar kynnst ýmsum hliðum lögfræðinnar, ritað greinargerðir og kröfugerðir bæði á sviði einkaréttar og opinbers réttar, unnið drög að reglum og reglugerðum á sviði neytendamála fjarskiptaréttar og komið að einfaldari verkefnum á sviði viðskiptaréttar. Ég hef sérhæft mig í lögum á sviði upplýsinga- og samskiptatækniréttar auk þess að hafa stundað laganám í háskóla þar sem námsgreinum hins nýja atvinnulífs er gert hátt undir höfði: Verðbréfamarkaðsréttur, félagaréttur, samkeppnisréttur og skattaréttur eru þar hluti af grunnnámi lögfræðinnar auk þess sem alþjóðaviðskiptalögfræði og upplýsingatækniréttur eru meðal kjörgreina minna.
Ég hef umfangsmikla þekkingu og reynslu af verkstýringu, greiningu, skipulagningu og úrvinnslu gagna og framsetningu efnis auk þess sem ég hef ítarlega þekkingu á flestum helstu tölvuforritum, hvort heldur er ritvinnslu, töflureikni, upplýsingakerfum eða annars konar forritum. Ég hef ítrekað stýrt innleiðingu nýrra upplýsingakerfa sem verk- og/eða fjáhagsbókhald fyrirtækja en starfsferill minn snéri lengi vel að vinnslu með fjármuni, tölur, tölvur og texta.
Ég hef lengi verið heilluð af möguleikum upplýsingatækninnar og netið er þar engin undantekning. Ég tileinkaði mér netið á árdögum þess og hef fylgst náið með þróun þess alla tíð síðan. Ég var ein af stofnendum og stjórnarmaður í evolt.org, alþjóðlegu vefsamfélagi fyrir vefhönnuði og vefforritara. Evolt.org var frumkvöðull á heimsmælikvarða og lengst af stærsta samfélag sinnar tegundar.
Ég hef lagt áherslu á að leggja mitt af mörkum til félagsstarfa sem tengjast starfi, áhugamálum og fjölskyldu. Frameftir aldri var ég keppandi í íþróttum og síðar þátttakandi í félagsstarfi Breiðabliks. Með dótturinni, sem nú er í menntaskóla, fer ég reglulega á knattspyrnuleiki og tek þátt í félagsstarfi í tengslum við skólagöngu hennar og áhugamál.
Með framhaldsnáminu í Osló lokaði ég þríhyrning lögfræði, upplýsingatækni og viðskiptafræði, sem hefur endurspeglað náms- og starfsferil minn frá upphafi. Að námi loknu er ég komin með öfluga og sérhæfða þekkingu sem ég tel að geti nýst íslensku atvinnulífi vel.
Ég legg metnað í að vinna hratt, skipulega og af áhuga á verkinu hverju sinni, hef yndi af ögrandi verkefnum, skapandi lausnum og að leita nýrra leiða og tileinka mér nýja þekkingu til að auka færni í starfi.
Með kveðju,
Elfur Logadóttir
Aldeilis ekki
Ég hélt það líka fyrst og skráði í kynningarbréfið að ég væri með BA í lögum en síðan gerðist tvennt sem breytti skoðun minni á því:
1. Ég sótti um opinbert starf, skrifaði á ferilskrána mína BA í lögfræði en var titluð lögfræðingur þegar tilkynnt var hverjir hefðu sótt um.
2. Mér barst póstur frá deildarforseta lagadeildar HR með upplýsingum um að BA í lögfræði dugi til inngöngu í Lögfræðingafélag Íslands.
Þannig að ég breytti því í lögfræðingur á ferilskránni minni, enda félagi í Lögfræðingafélagi Íslands. Cocoa puffs námið er nefnilega ansi drjúgt :)

Heitir það ekki BA í
Heitir það ekki BA í lögum frá HR?? Þreytandi þegar þetta HR lið er að kalla sig lögfræðingar eftir 3 ára cocoa puffs nám:) En annars mjög impressive ferilskra.