Ferðin er hafin
Jæja, ferðalagið mikla er þá hafið. Hófst reyndar fyrir sólarhring síðan þegar ég steig um borð í flugvélina áleiðis til Noregs. Þegar við lentum á Gardemoen var orðið ljóst að Oslo tekur alltaf á móti mér á sama hátt - með hellirigningu. Í leigubílnum á leiðinni[1] að íbúðinni fékk ég sambærilega rigningu og var þegar ég kom fyrir mánuði síðan (algjört úrhelli) og ég prísaði mínum sæla að vera amk. innandyra í þetta skiptið.
Það stytti þó að lokum upp og ég gat stokkið útí búð til að kaupa örlítinn matarbita og grundvallarhreinlætisvörur fyrir fyrsta daginn, sem ég hugðist samt nýta meira til hvíldar en nokkurs annars. Ég átti þó alla vegana í ískápnum eina stóra jógúrt, lítra af appelsínusafa, íslenska vatnsflösku og smjörstykki og í frystinum einn poka af Hatting brauði[2]. Já og svo keypti ég handsápu og klósettpappír.
Síðan tóku við einir 17 og hálfur tími þar sem ýmist var sofið eða mókt eða fylgst með fréttum að heiman og eitthvað fleira álíka lítilfjörlegt. Þegar ég vaknaði í morgun blasti sólin síðan við.
Ég svaf inni í Ragnheiðar Lóu herbergi, af því ég hafði komið öllu dótinu fyrir inní mínu herbergi og ég ákvað að dreifa aðeins úr mér (það var líka svalara þar inni, því sólin var meira hinum megin :)) Nú vantar mig bara stól til þess að sitja á, rúm til að sofa á og ... allan húsbúnaðinn sem kemur ekki úr skipi fyrr en næstkomandi mánudag í fyrsta lagi.
Best að fara að leita að svefnherbergishúsgagnaverslun ...
[1] var með svo þungar töskur að ég splæsti í leigubíl alla leið, mæli ekki með því, enda fór ég á hausinn á þessu ferðalagi.
[2] átti (þt.) af því að það hefur töluvert minnkað í magni frá því það var keypt.
