Breytingar framundan
Eins og lýðnum má vera ljóst verða breytingar hjá mér à byrjun ágúst nk. þegar ég flyt tÃmabundið til Osló til þess að slá lokahöggið à námsbrölti mÃnu.
Ég hef minnst á það áður að ég er að setjast á norskan skólabekk að nema upplýsinga- og samskiptatæknilögfræði. Ég hef lÃka minnst á það áður hversu frábæra Ãbúð ég tók á leigu.
Það sem ég hef ekki minnst á áður er að öllu þessu fylgja breytingar. Breytingar á mÃnum högum og ekki sÃst breytingar á þessum vef.
Ég hef reynt að fremsta megni að halda vefnum frekar formlegum nokkuð "professional". Hefur þetta verið stefnan af ýmsum ástæðum og ekki sÃst þeim að ég hef notað þennan vef fyrst og fremst sem kynningartæki sjálfrar mÃn fremur en upplýsingaveitu um þvottadaga og þess háttar (ólÃkt ónefndum heilbrigðisráðherra :)
Ég mun lÃklegast aldrei skrifa um þvottadaga og þvà sÃður tilgreina efnisatriði dagsins með tÃmastimpli lÃkt og sú ónefnda gerir enda er enn nokkur tÃmi à að minn dagur verði eins þétt skipaður og hennar.
Þar sem fjarlægðin við nákomna mun hins vegar aukast til muna og samskiptin verða óreglulegri, má fyllilega gera ráð fyrir þvà að hér komi óreglulega pistlar um uppákomur daganna á nokkuð meiri persónulegum nótum en verið hefur hingað til. Eins munu jafnvel birtast ljósmyndir af mismerkilegum atburðum, svona eins og gengur og gerist á venjulegum persónulegum vefsÃðum.
Af þessari ástæðu er ekki ólÃklegt en að útlit vefsins taki einnig einhverjum breytingum til þess að bera efnislegar breytingar enda vel kominn tÃmi til, svo ég minni enn á fyrri færslur mÃnar.
