Ég stökk til Osló í síðustu viku, með ca. 2ja daga fyrirvara, til þess að skoða og helst ganga frá íbúð sem litla fjölskyldan myndi búa í á meðan á Noregsnámi stæði.

Ég lagði af stað með þau skilyrði í farteskinu að í íbúðinni væru tvö svefnherbergi, nýlegt eldhús og nýlegt bað og ég hafði árangur sem erfiði. Ég fann fallega íbúð í góðu húsi í ágætu nágrenni við miðbæinn og þá staði sem mikilvægir eru - án þess þó að vera alveg ofaní bæ.

Íbúðin er splunkuný á efstu hæð í nýrri byggingarsamstæðu sem heitir Waldemars Hage. Samstæðan minnir um margt á hönnunina og bygginguna á 101 Skugga, bæði hvað varðar staðsetningu og tæknilegar lausnir innanhúss.
Þar sem ég sé fram á að innan 3ja ára verði ég byrjuð að skipuleggja og vonandi ganga frá kaupum á minni eigin íbúð í byggingu, vona ég að hönnunarlegar lausnir í þessari íbúð verði mér innblástur.

Ég mun örugglega segja betur frá tæknilegu lausnunum síðar en núna er tíminn fyrir myndir, af íbúðinni og útsýninu.

Allar myndir hér að neðan eru fengnar á söluvefjum vegna samstæðunnar, höfunda var hvergi getið en þær eru að sjálfsögðu að fullu varðar höfundarétti þeirra, teknar í þeim tilgangi að sýna og selja íbúðir af tegund 3-1 í Waldemars Hage.

Skoðum fyrst skipulag íbúðarinnar, ef þú speglar eftirfarandi mynd, sérðu hvernig íbúðin lítur út.

Teikningar af íbúðinni

Litla herbergið hægra megin (vinstra megin í raun) verður Lóu herbergi, það er ekki stórt en það rúmar allt sem nauðsynlegt er að hafa í einu herbergi: rúm og náttborð ;)

Tekið með gleiðlinsu lítur það svona út:

Það er alveg hreint með ólíkindum hvað gleiðlinsan virkar til stækkunar og afmyndunar á rými. Herbergið er langt frá því að vera eins stórt og það lítur út á þessari mynd, enda varla meira en 7-8 fermetrar að stærð.
Annað sjónarhorn á sama herbergi:

Gott dæmi um raunverulega stærð herbergisins sést á næstu mynd, sem er önnur útgáfa af íbúðinni, þar sem veggurinn milli herbergis og stofu hefur verið felldur niður. Þegar vel er að gáð sést að herbergið er ekki mikið breiðara en umfang voldugs eins sætis sófa:

Á myndinni hér að ofan sést einnig ein aðalástæðan fyrir því að þessi íbúð varð fyrir valinu. Stórglæsilegur suðaustur veggur íbúðarinnar er fellanlegir gluggar - þ.e. hægt er í raun að fjarlægja suðaustur vegginn og opna 4 metra breiða íbúðina að fullu fyrir morgunsólinni. Það er eins gott að haustið og vorið verði eins gott og ég vona :)

Stofan er annars nokkuð einföld örugglega nálægt því 20 fermetrar að stærð (frá gluggum að eldhúseyju) eins og sést á næstu myndum (sem nokkrar eru vissulega teknar með gleiðlinsu):

Auð stofan með útsýni í austur

Tekið í átt að eldhúsinu (enn með gleiðlinsu):

Enn ein af stofunni, tekin frá sjónarhorni sem sýnir birtuna í gegnum alla íbúðina. Í fjarendanum er svalahurðin út úr svefnherberginu:

Í eldhúsinu er ótrúlega mikið skápapláss, svona amk. miðað við stærð íbúðarinnar, og það sama gildir um íbúðina alla: vel nægjanlegt skápapláss fyrir okkar þarfir. Nokkrar nærmyndir af eldhúsinu, íbúðin sem ég leigi er með eikareyju eins og sést á annarri mynd hér að neðan. Einnig fylgja öll heimilistæki með íbúðinni, uppþvottavélin er í rýminu sem stendur autt á þriðju myndinni:

Svefnherbergið mitt er í norðvestur enda íbúðarinnar, með slatta af kvöldsól til að njóta fyrir svefninn. Næstu þrjár myndir eru af svefnherberginu, sú fyrsta (án gleiðlinsu) sýnir nokkuð stærðina á herberginu hinar tvær sýna herbergið innréttað, þrátt fyrir allt er pláss fyrir tvöfalt rúm:

Baðherbergið er stílhreint og flott eins og sjá má á neðangreindum myndum. Bakvið hurðina þar sem gengið er inn, fyrir framan klósettið, verða síðan bæði þvottavél og þurrkari:

Það fyndnasta og það sem verður skemmtilegast að finna lausn á eru gluggarnir inn á baðherbergið, það eru sem sagt gluggar innan íbúðarinnar til þess að hleypa birtu inn á baðherbergið. Glugginn frá eldhúsinu er grámattaður en glugginn frá svefnherberginu inniheldur venjulega rúðu, í augnablikinu ekki gott fyrir spéhrædda að fara í sturtu eins og sést á eftirfarandi mynd sem er tekin úr sturtunni.

Séð úr baðherbergi inn í svefnherbergi

Á þakinu er verönd sem nær yfir allt innra byrði íbúðarinnar, alls 60 fermetrar. Hér sést suðurhluti verandarinnar (vinstri hlutinn tilheyrir "minni" íbúð, hægri hlutinn er nágrannanna):

Þakveröndin

Og að lokum, tvær myndir af ytra byrði hússins. Sú fyrri er með sjónarhorni frá garðinum og ánni og sú síðari frá götunni, íbúðin er á efstu hæð í turni tvö:

Blokkin séð frá garðinum, hægra megin í öðrum turni frá vinstri
Blokkin séð frá götu

Allar myndir hér að ofan eru fengnar á söluvefjum vegna samstæðunnar, höfunda var hvergi getið en þær eru að sjálfsögðu að fullu varðar höfundarétti þeirra, teknar í þeim tilgangi að sýna og selja íbúðir af tegund 3-1 í Waldemars Hage.

 

Svara

Innihald þessa svæðis verður ekki sýnilegt almenningi.
  • Leyfð HTML merki: <a> <em> <strong> <cite> <code> <ul> <ol> <li> <dl> <dt> <dd><blockquote>
  • Línur og málsgreinar skiptast sjálfkrafa.
Frekari upplýsingar um sniðmöguleika