Ég var ásamt hinum helmingnum af minni kynslóð stödd í Egilshöll í gærkvöldi. Ég er hreint fullviss um að þar fór fram landsins stærsta unglinga "ríjúníon" sem sögur fara af. Andlitin sem ég þekkti frá fyrri tíð skiptu hundruðum og var ég eiginlega búin að gleyma hvað ég hef kynnst mörgum í gegnum tíðina.

Þetta var hin mesta skemmtun. Við hlustuðum á Duran Duran allan daginn í vinnunni, Duran var í útvarpinu í bílnum á leiðinni uppeftir og svo voru þeir sjálfir að sjálfsögðu aðalnúmerið. Enn meira Duran var svo í útvarpinu í bílnum á leiðinni heim. Allt þetta leiddi að sjálfsögðu til þess að þegar ég lagðist í rúmið að degi loknum þá sönglaði Duran í hausnum á mér og þegar ég vaknaði í morgun þá var ég komin aðeins neðar í lagalistann - en enn var það þó Duran.

Ég var með símann á lofti og smellti af nokkrum myndum, bæði "stills" og "video" og það ætti því að vera von á hundlélegum ljósmyndum og enn verri myndskeiðum á næstunni - því síminn minn er alls ekki sá besti að þessu leyti sko :)

/elfur

 

Svara

Innihald þessa svæðis verður ekki sýnilegt almenningi.
  • Leyfð HTML merki: <a> <em> <strong> <cite> <code> <ul> <ol> <li> <dl> <dt> <dd><blockquote>
  • Línur og málsgreinar skiptast sjálfkrafa.
Frekari upplýsingar um sniðmöguleika