Ég átti góðan dag í gær. Eiginlega alveg stórgóðan. Var mætt í myndatöku niðr'í skóla rétt um 11 og síðan tók við æfing fyrir útskrift og loks útskriftin sjálf. Ég fagnaði með fjölskyldu og vinum frá síðdegi fram á nótt og vaknaði þreytt en sæl ískyggilega nálægt hádegi í dag.

Ég er fyrsti nemandinn í sögu Háskólans í Reykjavík sem útskrifast frá tveimur deildum á sama tíma, og það á fjórum árum, og er bara nokkuð stolt af því. Það var reyndar ekkert minnst á það í athöfninni en það er ekki það sem máli skiptir, enda dugir tilkynning fréttastofu Útvarps um efnið. [Innskot: Það voru að sjálfsögðu eingöngu 258 nemendur sem brautskráðust frá HR þar sem ég telst tvisvar í birtum tölum, einu sinni með lagadeild og einu sinni með viðskiptadeild.]

Ég stefni enn ótrauð á áframhaldandi laganám og mun ljúka meistaranámi með áherslu á fjölmiðla-, upplýsingatækni- og fjarskiptarétt, en það er aldrei að vita nema leiðin að markinu breytist verði rétta tækifærið á vegi mínum. Hvernig það allt saman fer mun tíminn einn leiða í ljós.

 

Svara

Innihald þessa svæðis verður ekki sýnilegt almenningi.
  • Leyfð HTML merki: <a> <em> <strong> <cite> <code> <ul> <ol> <li> <dl> <dt> <dd><blockquote>
  • Línur og málsgreinar skiptast sjálfkrafa.
Frekari upplýsingar um sniðmöguleika