Haltu áfram að koma vel fram við manninn þinn
- Hafðu matinn tilbúin, vertu BÚIN að panta borð fyrirfram. Ef dagurinn þinn er of annasamur skildu þá eftir skilaboð á talhólfinu hans um hvar þú vilt borða og kl. hvað. Þetta sýnir honum að dagurinn þinn hafi verið ömurlegur og gefur honum færi á að gera eitthvað til að létta þér lund.
- Vertu vel snyrt - smá dekur á snyrtistofu ætti að gera galdurinn, það frískar þig upp og kemur í veg fyrir að þú verðir pirruð í hvert skipti sem hann opnar munninn. (ekki gleyma að borga með Gull-kortinu HANS)
- Hafðu heimilið snyrtilegt - hringdu í heimilishjálpina og segðu henni að draslið og dótið sem börnin skildu eftir á gólfinu megi fara í kassa niðrí kjallara merkt RAUÐI KROSSINN - HJÁLPARSTARF
- Undirbúðu börnin - sendu börnin inn í herbergi til að horfa á video eða spila Nintendo, þau eru nú einu sinni bæði hans frá fyrri hjónaböndum.
- Dragðu úr hávaða - ef svo vill til að þú ert heima þegar hann kemur heim vertu þá inni á baðherbergi með hurðina læsta
- Ekki byrja á því að kvarta - leyfðu honum að kvarta fyrst, þannig fá þínar kvartanir meiri athygli og eru honum ferskari í minni við kvöldverðarborðið. EKKI kvarta ef hann er of seinn í matinn, segðu honum bara hvar afgangana er að finna og að þú hafir skilið eftir óhreina leirtauið í vaskinum fyrir hann til að þvo.
- Hlúðu að honum - segðu honum hvar hann getur fundið teppi ef honum er kalt, það sýnir að þér er verulega annt um hann.
- Hlustaðu á hann - en gættu þess þó að leyfa honum aldrei að eiga síðasta orðið
- Gerðu honum kvöldið þægilegt - ekki kvarta þó hann fari ekki með þig út að borða eða út á meðal fólks, farðu með vinkonum þínum og slettu ærlega úr klaufunum og ekki gleyma að borga með Gull-kortinu hans... kynntu honum rækilega merkingu orðsins STELPUKVÖLD!
nútímakonan svarar fyrir sig.
[ þetta er óþarfi ]
