Það var ekki leiðinlegt að lesa tölvupóstinn minn nú áðan. Bente, tengiliður norsku lagadeildarinnar við erlenda stúdenta í upplýsinga- og samskiptatæknilaga náminu, sendi mér línu til þess að segja mér að LLM skírteinið færi í póst fljótlega og þyrfti þess vegna að fá heimilisfangið mitt.

Það er nú svolítið skrítið að ljúka framhaldsnáminu (postgraduate) áður en maður lýkur framhaldsnáminu (graduate) en það má segja að það sé staða einstæðu móðurinnar í hnotskurn, hagræðing og hliðrun og á köflum örlítið skrítið skipulag er það sem tryggir bæði móður og barni bestu velferðina.

Fylgifréttir með upplýsingum um skírteinið voru að sjálfsögðu þær að búið væri að meta ritgerðina mína til einkunnar, til hæstu einkunnar!

Ég reyni að horfa fram hjá pressunni sem þessar fréttir setja á ritgerðina sem ég er að skrifa þessa dagana, pressunni sem myndast við það að þær tvær háskólaprófsritgerðir sem ég hef þegar skrifað og skilað, hafa báðar fengið hæstu einkunn.

Segir ekki máltækið "Allt er þá þrennt er?"

 

Svara

Innihald þessa svæðis verður ekki sýnilegt almenningi.
  • Leyfð HTML merki: <a> <em> <strong> <cite> <code> <ul> <ol> <li> <dl> <dt> <dd><blockquote>
  • Línur og málsgreinar skiptast sjálfkrafa.
Frekari upplýsingar um sniðmöguleika