Abbababb

Feb 15
2002

árið er 2002 og vefurinn er ennþá svona!

Fyrsta abbababb-ið á þessum vef er margþætt í þeim skilningi að það er ekki bundið við neinn einn vef eins og raunin mun oftast verða í framtíðinni. Ég get nefnilega endalaust furðað mig á þeirri staðreynd að jafnvel stórir og vinsælir íslenskir vefir binda sig enn við www í slóð sinni. Ef þú slærð ekki inn www.slóð.is þá hreinlega kemstu ekki á vefinn, færð villu sem oftast hljómar eitthvað á þessa leið: "The page cannot be displayed" eða "No Web page is configured at this address" eða jafnvel "Forbidden, you don't have permission to access /
on this server"
.

Það er sem sagt engin tæknileg ástæða fyrir því að slóðir innihéldu www í upphafi. Slíkt var eingöngu gert til þess að létta undir með frumkvöðlum vefsins. Aðgreiningin fólst þá einkum í því að minna á að slóðin var á "veraldarvefnum" (e. World Wide Web) en ekki einhverju öðru óskilgreindu neti.

Ágætu fyrirsvarsmenn eftirtalinna fyrirtækja og stofnana, er ekki kominn tími til þess að stilla strengi ykkar í takt við nútímann.

Nú og svo má ekki gleyma þeim vefjum sem vísa á mismunandi síður eftir því hvort valin er slóðin með eða án www.

Viðbætur og breytingar

Það er víst ekkert nema sanngjarnt að minnast jafnframt á þegar
áðurgreind fyrirtæki bregðast við áskorun eins og þessari. Eftirtaldir
aðilar voru áður á listanum hér fyrir ofan, en hafa nú stillt strengi
sína í takt við allan almenning.

 

Svara

Innihald þessa svæðis verður ekki sýnilegt almenningi.
  • Leyfð HTML merki: <a> <em> <strong> <cite> <code> <ul> <ol> <li> <dl> <dt> <dd><blockquote>
  • Línur og málsgreinar skiptast sjálfkrafa.
Frekari upplýsingar um sniðmöguleika