Þá er klukkan orðin rúmlega 18 að íslenskum tíma og við Lóa stóðum á refresh takkanum síðustu fimm mínúturnar.
Niðurstaðan var í samræmi við væntingar og trítlan mín hefur nám í menntaskóla í haust - í Menntaskólanum í Reykjavík.
Þar byrjuðu báðir foreldrar mínir sitt menntaskólanám og einhver systkini pabba líka.
Ég held að þetta verði frábært fyrir hana enda ætlar MR að halda vel utan um börnin. Áætlun skólans hljómaði uppá innritun í tvær sérstakar bekkjardeildir fyrir unglinga sem koma beint úr 9. bekk og halda þeim saman í 3. og 4. bekk. Við fáum síðan væntanlega frekari fréttir um hvernig fyrirkomulagið verður þegar innritunarbréfið berst í hús.
Þá fáum við líka að vita hvort hún fer á náttúrufræðibraut eða málabraut, því trítlan hafði fullkomnlega háleit markmið og sótti um sem aðalval náttúrufræðibraut í MR. Hún valdi reyndar líka náttúrufræðibraut í varaskólunum, en það er önnur saga.
