Jæja, þá er vonandi komið að nýjum áfanga í mínu lífi.
Ef Guð lofar, þá hef ég setið mitt síðasta próf í háskóla.

Framundan eru ritgerðaskrif - tvær meistaraprófsritgerðir á næstu 6 mánuðum, en mikið ótrúlega er það notarleg tilfinning að sjá fyrir endan á þessu brölti :)

En hvað svo?
Það er spurningin sem ég velti mikið fyrir mér þessar vikurnar, hvar vil ég vera og hvað vil ég verða?
Ég vil að sjálfsögðu vera og verða lögfræðingur (faktískt er ég lögfræðingur) svona "alvöru" lögfræðingur, með fullt 5 ára nám að baki. Þeim áfanga næ ég síðar á þessu ári, þannig að það þarf að finna nýjan.
Ég er sem sagt að byrja að leita mér að starfi. Ef þú veist um eitthvað skemmtilegt eða hefur eitthvað skemmtilegt handa mér, þá þætti mér ekki leiðinlegt að heyra frá þér. Ferilskráin mín er reglulega uppfærð þannig að hún ætti að vera nokkuð rétt.

Hvað vil ég, spyrðu. Ef ég vissi það nú :)
Ég vil fyrst og fremst eitthvað spennandi, krefjandi og lifandi (já ég veit, þrengir sviðið mjög mikið). Helst á sviði upplýsingatækniréttar (ah, þar þrengdi ég það allt of mikið - eða hvað?). En annars er það svo margt sem ég get, sem mig langar og sem hentar. Bara spurning um að finna rétta "match"-ið.

 

Svara

Innihald þessa svæðis verður ekki sýnilegt almenningi.
  • Leyfð HTML merki: <a> <em> <strong> <cite> <code> <ul> <ol> <li> <dl> <dt> <dd><blockquote>
  • Línur og málsgreinar skiptast sjálfkrafa.
Frekari upplýsingar um sniðmöguleika