Tækniframfarir

Oct 23
2003

Tæknin er yndisleg

Ég sit hér við borðstofuborð vinkonu, útlæg úr eigin húsnæði næsta sólarhringinn og ráfa um vegi veraldarinnar frá minni eigin fartölvu. Ég þakka [nafn hugmyndasmiðs] kærlega fyrir framfarirnar. Hvar sem er, hvenær sem og úr hvaða sæti sem er tengist ég netinu með einum litlum lykli og einu þunnu korti sem kemur í stað allra snúra.

Vinirnir eru yndislegir

Það er á tímum sem þessum (þegar maður er útlægur úr eigin húsnæði) sem vinir eru dýrmætir og þá sérstaklega þolinmóðir vinir, sem eru tilbúnir að taka við barni og búi án nokkurs fyrirvara. Ég er svo heppin að eiga nokkra slíka vini og er þakklát fyrir þá alla.

Skólinn er yndislegur

- en þungur

Það skyldi þó ekki vera að þegar allt virðist ganga vel upp, þá sé eitthvað sem raskar gleðinni. Í þetta skiptið er það skólinn. Mikið álag er á nemendum þessar vikurnar, skiladagar stórra verkefna koma og fara eins og þeim sé greitt fyrir það.

 

Svara

Innihald þessa svæðis verður ekki sýnilegt almenningi.
  • Leyfð HTML merki: <a> <em> <strong> <cite> <code> <ul> <ol> <li> <dl> <dt> <dd><blockquote>
  • Línur og málsgreinar skiptast sjálfkrafa.
Frekari upplýsingar um sniðmöguleika