Jónas Kristjánsson setur inn athyglisverðan pistil á vefsíðu sína í dag, þar sem hann fjallar um ábyrgð á birtu efni á netmiðlum.

Netmiðlar lúta lögum
Fjölmiðlar og aðrir, sem gefa út netmiðla af ýmsu tagi, eiga að gefa bloggurum auðveldan kost á að birta eingöngu athugasemdir undir fullu nafni. Þar með væri ábyrgð vísað frá netþjónum, netmiðlum og viðurkenndum bloggurum yfir á hendur fólks, sem nú felur geðveiki sína undir nafnleysi. Það mundi sleppa athugasemdunum eða vanda þær betur. Hvort tveggja er góður kostur. Dómvenja hefur skapazt um, að lög um prentmiðla gilda um ljósvakamiðla og munu því einnig gilda um netmiðla, þótt á það hafi ekki reynt. Fyrir rest er prentarinn ábyrgur, það er að segja netþjónninn.

Sérstaka athygli vekur hjá mér ummæli hans um að dómvenja hafi skapast um að prentlögin gildi um varpmiðla. Ég veit ekki betur en að núgildandi útvarpslög hafi nægilega sérgreindar ábyrgðarreglur til þess að ekki þurfi að líta til prentlaga um ábyrgð og væri því áhugavert að heyra frá Jónasi hvað hann eigi við þar.
Áfram heldur Jónas og leiðir af dómvenjunni að prentlögin hljóti að gilda um netmiðla líka. Ég er í sjálfu sér ekki ósammála því en tel að málið sé flóknara en það. Ég er í öllu falli ekki sammála því að hin sérstaka ábyrgðarröð sem rakin er í prentlögum gildi um netmiðla, þannig að á grundvelli prentlaga verði ábyrgð skref fyrir skref látin enda hjá rekstraraðila netþjónsins sé höfundur ekki nægilega sérgreindur. Enda eru fleiri lög sem taka þarf tillit til. Kemur þar upp í hugann lögin um rafræn viðskipti og rafræna þjónustu, þar sem fjallað er um ábyrgð rekstraraðila og hún einmitt sérstaklega takmörkuð.

 

Svara

Innihald þessa svæðis verður ekki sýnilegt almenningi.
  • Leyfð HTML merki: <a> <em> <strong> <cite> <code> <ul> <ol> <li> <dl> <dt> <dd><blockquote>
  • Línur og málsgreinar skiptast sjálfkrafa.
Frekari upplýsingar um sniðmöguleika