Um daginn fékk ég tölvupóst þar sem mér var bent á nýja leitarvél. Ég, sem ofurnotandi á google.com gat ekki annað en undrast hverjum dytti í hug að reyna að koma annarri
vél á framfæri, en þar sem ég er óskaplega forvitin ung stúlka, þá ákvað ég að skreppa yfir á teoma.com og prófa dýrðina, sem er reyndar ennþá í beta útgáfu.
Ég sló náttúrulega inn mikilvægasta leitarorðið í mínum huga: elfur,
hálfbrosandi, þóttist alveg viss um hvaða niðurstöðu leitin myndi hafa. Mér til mikillar undrunar þá birtust strax á fyrstu tveimur
niðurstöðusíðunum slóðir á síður sem ég hafði aldrei áður séð, slóðir á síður sem ýmist minntust á mig eða nafnið mitt, jafnvel nöfnur mínar á stundum. Það sem kom mér þó mest á óvart var alger skortur á tilvísun í
evolt.org, ekki vegna þess að það væri svo mikilvægt, heldur vegna þess að nafnið mitt kemur svo oft fyrir þar og Google skilar því svo framarlega. Jafnframt varð mér ljóst að leitarvélin indexar síður á netinu ekki nógu oft, þar sem elfur.is og elfur.com voru báðar gersamlega endurnýjaðar fyrir rúmum mánuði síðan.
Það sem hér á eftir fer er dulítið sýnishorn af því sem ég kynntist í fyrsta sinn, fyrir tilstilli teoma.com.
Óþekkt umfjöllun, dulítið vanity nudd
- Einu sinni fékk ég bréf frá kennara við skóla í Hollandi þar sem ég var spurð um íslenska skólakerfið.
- Í veikri von minni um ódauðlega frægð skráði ég nafn mitt og skilaboð í stórskrítna gestabók fyrir sex árum síðan.
- Þegar xml var lítið og óþekkt reyndi ég að svara því hvað það var.
Nafnið Elfur á öðrum síðum
- Þær eru víst líka til, síðurnar sem þykjast vita fyrir hvað nafnið mitt stendur.
- Einhverjir hestar hafa fengið að bera þetta fagra nafn. Tenglar á slíkar síður voru of margir, ég hreinlega gat ekki valið úr.
Nöfnur mínar á netinu
Eftirfarandi vefsíður minnast á nafnið Elfur, sem í þessu tilviki á
alls ekki við mig, heldur nöfnur mínar sem farnar eru að notfæra sér
netið í ríkara mæli.
- http://www.hi.is/~elfur (einu sinni var þetta mitt veffang)
- http://www.khi.is/~elfurha
- http://www.community.webshots.com/user/elfur
