Íbúðin mín lítur í augnablikinu út eins og hún sé stödd mitt í múslimsku hverfi Beirútborgar[1] fremur en í rólegu og grónu hjarta Kópavogs. Það eru þrjúhundruðogsjötíu kassar á fleygiferð um alla íbúð, ýmist á leið inn í geymslu eða út úr henni og enn fleiri sem bíða þess að verða fluttir í skip.

Sá hluti búslóðarinnar sem tekinn verður með, fer sem sagt í skip eftir sex daga, afgangurinn fer í geymsluna (ég þakka guði og karli föður mínum fyrir forsjónina með því að hafa hætt við að fylla í rýmið undir bílskúrnum, eins og upphaflegar teikningar gerðu ráð fyrir hér um árið).

Þetta er sem sagt allt að bresta á, búin að endurnýja vegabréf og ökuskírteini, nokkurn vegin búin að ákveða hvað fer og hvað verður eftir, hverju verður hent og hverju verður safnað áfram enn um sinn, hverju á að klæðast og hverja á að klæða.

Það stefnir allt í að ég sendi eina þrjá til fjóra kassa norður til systur hennar Ragnheiðar Lóu, fyrir utan það sem fer til Trínu eins og venulega, hluti er farinn til litlu bræðranna í Selbrekkunni og hluti til Gígju hennar Karenar Maríu hennar Lilju (svona svo þið tengið öll :)) og enn einn hluti fer í Fannarfellið til Erlings hans Valda bróður. Samt fer ótrúlega mikið í geymsluna, til þess að bíða eftir næsta skammti af tiltekt og sorteringu.

Ég ætlaði að reyna að klára að fara í gegnum alla kassa í minni eigu og sortera og merkja og flokka og raða, svona eins og mér einni er lagið, en eins og svo oft vill verða, þá takmarkast vinnutíminn við nýtilegar klukkustundir á hverjum sólarhring og því miður, þrátt fyrir að hafa byrjað snemma í júní, þá dugir það ekki til og ég kem til með að þurfa að hafa nokkra "ósorterað" kassa í geymslunni. Það er allt í lagi, ég fel þá bara inn á milli húsgagna og númeraðra kassa, það sér það enginn :)

Yfir og út í bili.

[1] Svona til að fyrirbyggja allan misskilning, þá er þetta tilvísun í hádegisviðtalið á NFS í dag, þar sem Alma Hannesdóttir ein hinna íslensku "flóttamanna" sem eru nýkomin frá Beirút, lýsti því hvernig þau, hinir kristnu íbúar Beirútborgar, hefður fengið upplýsingar um það að Ísraelar myndu einungis ráðast á múslimsk hverfi sömu borgar.

 

Svara

Innihald þessa svæðis verður ekki sýnilegt almenningi.
  • Leyfð HTML merki: <a> <em> <strong> <cite> <code> <ul> <ol> <li> <dl> <dt> <dd><blockquote>
  • Línur og málsgreinar skiptast sjálfkrafa.
Frekari upplýsingar um sniðmöguleika