abbababb
Ég get nú ekki orða bundist lengur.
Sit við skriftir og á því ekkert að vera að ibbast upp á blogg, en ég stalst krúsina í kvöld og skoðaði færslur ýmissa aðila undanfarna daga, ásamt með athugasemdum við þær. Ég kemst ekki yfir það hvað við búum í skelfilega heiftúðugu þjóðfélagi hérna á Íslandi. Flestar eiga umræðurnar það sammerkt að í stað þess að ræða málefnalega um umræðuefnið sem verður uppspretta fyrstu bloggfærslunnar (sem nota bene eru alls ekki allar málefnalegar) taka við gríðarleg níð, málefnið er nítt, persónan er nídd og jafnvel heilu flokkarnir eða fylkingarnar fordæmdar fyrir að vera "vondar" - allt til að þurfa ekki að mætast með rökum. Tökum nokkur dæmi:
Ég er í færslubanni "rétt á meðan" ég klára síðustu meistaraprófsritgerðina mína, en ég gat samt ekki orða bundist eftir upplifun mína nú áðan.
Af óútskýrðum ástæðum var ég, þar til fyrir 10 mínútum síðan, áskrifandi af markaðspóstum frá Dell Norge, sem er svosum ekki í frásögur færandi, nema ég ákvað að nú væri komið nóg og ég hefði ekkert við frekari áskrift þar að gera.
Ég fylgdi leiðbeiningunum í tölvupóstinum sem mér hafði borist, smellti á tengilinn og það opnaðist vefsíða þar sem ég gat sett inn netfangið mitt og valið að láta fjarlægja áskrift, sem ég og gerði.
Að því loknu fæ ég klassíska skilaboðasíðu þar sem tilgreint er að frá þessu verði gengið en það gæti tekið smá stund. Hluti skilaboðanna hljóðuðu svona:
As of 11/15/2007 09:40:49, this e-mail address will be opted out from all marketing e-mail subscriptions within 48 hours. In the interim, you may continue to receive e-mail marketing to which you originally subscribed.
Fair enough hugsaði ég, menn hljóta að vera að gera þetta handvirkt úr því það tekur heila tvo daga, en við látum okkur hafa það.
En svo kom í ljós þjónustulund þeirra Norðmanna, því stuttu síðar barst mér tölvupóstur til staðfestingar á þessari beiðni minni og þar höfðu Norðmennirnir þetta að segja:
Vi setter pris på å ha deg som kunde, og på din anmodning har vi fjernet din e-postadresse fra markedsføringslisten.
Du er slettet fra: [netfangið sem ég notaði]
Det kan ta opptil 28 arbeidsdager før endringen er ferdigbehandlet. I mellomtiden kan du motta e-post med reklame som du tidligere abonnerte på.
Það er ekki á Norðmennina logið. Það tekur þá allt að 28 virka daga að vinna það sem Kaninn telur sig þurfa tvo daga til.
Klassískir Norðmenn var það eina sem ég hugsaði.
árið er 2002 og vefurinn er ennþá svona!
Fyrsta abbababb-ið á þessum vef er margþætt í þeim skilningi að það er ekki bundið við neinn einn vef eins og raunin mun oftast verða í framtíðinni. Ég get nefnilega endalaust furðað mig á þeirri staðreynd að jafnvel stórir og vinsælir íslenskir vefir binda sig enn við www í slóð sinni. Ef þú slærð ekki inn www.slóð.is þá hreinlega kemstu ekki á vefinn, færð villu sem oftast hljómar eitthvað á þessa leið: "The page cannot be displayed" eða "No Web page is configured at this address" eða jafnvel "Forbidden, you don't have permission to access /
.
on this server"
