Óskalisti

5 Apr 2005 | elfur

Í hvert sinn er líður að gjafatímum fæ ég spurninguna "hvað á ég að gefa þér?" sem í 80% tilvika eyðileggur spennuna fyrir gjafatímanum, því ég veit alltaf hvað ég fæ - nema þegar ég svara "veit ekki". Ég tel mig hins vegar búna að finna lausnina: rafrænn óskalisti. Ég bið því vinsamlegast að þú spyrjir mig ekki aftur, heldur kíkir við hér þegar við á.

Lang lang lang efst á listanum þessa stundina er hlutur sem hentar vel fjölskyldunni minni: kostar ekki krónu - bara smá þolinmæði :)

Afþýðing á frystinum mínum!
- sá aðili sem gefur mér þessa gjöf á næstu 4 mánuðum (því í síðasta lagi eftir 4 mánuði neyðist ég til þess að gera þetta sjálf) verður elskaður til æviloka.
- tekið er við tímabókunum í síma 564 1700 eftir kl. 18 á kvöldin :)
Skrifstofustóll
Það er kominn tími til þess að ég eignist nýjan og þægilegan skrifstofustól - enda mastersnemi með meiru. Sá eini sem ég hef nokkurn tíma eignast er rauður úr tré og hefur verið ófóðraður í amk 15 ár. Hins vegar hef ég verið með í láni hjá karli föður mínum hinn sæmilegasta stól hann hefur dugað mér hingað til, en er eiginlega úr sér genginn.
Skápahurðir á fataskápinn minn
Það er alveg nóg að hafa fataskápinn hurðalausan í 7 ár, er það ekki? Þess vegna held ég að tími sé til kominn að ég fari að setja á hann framhliðar. Skápurinn sjálfur er frá Axis en ég hef ekki hugmynd um hvort það fást enn hurðir þar, þar sem grindin er orðin 20 ára gömul. Hins vegar fullyrðir mamma að IKEA hurðir virki fínt :).
Já og hann er 100cm breiður og flennihár - örugglega 230 eða hvað staðallinn er.
Ýmsir hlutir sem fást á Amazon.co.uk
Svo eru nokkrir hlutir (aðallega lítil raftæki og bækur) sem fást á betra verði á amazon.co.uk - og að sjálfsögðu er ég með óskalista þar
 

Post new comment

The content of this field is kept private and will not be shown publicly.
  • Allowed HTML tags: <a> <em> <strong> <cite> <code> <ul> <ol> <li> <dl> <dt> <dd><blockquote>
  • Lines and paragraphs break automatically.
More information about formatting options