Nýtt ár, nýr áfangi, nýtt upphaf, sama líf

2 Jan 2008 | elfur

Ég þarf víst ekki að segja ykkur að það er komið nýtt ár. Árið tvöþúsundogátta, takk fyrir. Með þessu nýja ári fylgja hjá mér hins vegar stærri breytingar en undanfarin áramót hafa haft í för með sér:

1) Ég er búin með skólann - allan skóla. Þann 19. janúar næstkomandi fæ ég afhent prófskírteini fyrir ML gráðuna með meðaleinkunnina 8,33. Í nóvember síðastliðnum barst mér prófskírteinið fyrir LL.M. gráðuna (engin meðaleinkunn reiknuð þar). Verð ég þá komin með 5 prófskírteini, þar af 4 á háskólastigi og þar af 2 á meistarastigi.
Ég held að þetta sé alveg nóg af prófum og gráðum og skírteinum.

2) Ég er komin með vinnu - framtíðarvinnu. Daginn eftir að ég skilaði inn meistaraprófsritgerð minni hóf ég störf hjá Auðkenni við undirbúning innleiðingar rafrænna skilríkja í íslensk debetkort. Ég get ekki neitað því að það er ósköp notarleg tilfinning að sjá loksins fram á reglulegar mánaðarlegar innborganir á launareikninginn minn, ég get loksins farið að huga að því að grynnka á skuldahalanum og farið að safna einhverju öðru en skuldum.

3) Ég verð gestakennari í námsgreininni upplýsingatækniréttur við HR. Verð með fyrirlestur um stjórnhætti netsins (e. Internet Governance) sem er hluti upplýsingatækniréttarins sem ekki hefur farið mikið fyrir hér á landi.

Þetta hefur að sjálfsögðu í för með sér ákveðnar grundvallarbreytingar á öllu mínu skipulagi en ég stefni engu að síður að því að halda áfram undirbúningi að endurnýjun Tíðarandans, sem er langt á veg komin sem og undirbúningi að sérhæfðum íslenskum vef um upplýsingatæknirétt. Stay tuned eins og Kaninn segir.

Einnig má við þetta tækifæri að sjálfsögðu geta þess að báðar ritgerðir mínar til meistaraprófa má nálgast hjá undirritaðri fyrir sanngjarnt verð. Meira um það mjög fljótlega.

Við látum þá þessu fréttabréfi lokið að sinni, en það má með sanni segja að sjaldan hafi eitt fréttabréf verið eins gríðarríkt af innihaldi eins og það sem hér liggur fyrir </grin>

 

Post new comment

The content of this field is kept private and will not be shown publicly.
  • Allowed HTML tags: <a> <em> <strong> <cite> <code> <ul> <ol> <li> <dl> <dt> <dd><blockquote>
  • Lines and paragraphs break automatically.
More information about formatting options