Skrítið

20 Sep 2007 | elfur

Það var skrítin tilfinning að vakna í morgun. Þegar ég var búin að klæða mig, þvo mér, borða morgunmat og bursta tennurnar þá vissi ég hreint ekki hvað ég ætti að gera.

Jú, pabbi hafði beðið mig fyrir verkefni og jújú auðvitað mun ég vinna það, en það var ekkert sem lá á að byrja strax.

Ég stóð inni í herbergi, horfði á skrifborðið og áttaði mig loksins á því að ritgerðin var farin og það var ekkert sem ég gæti gert til þess að breyta henni og ekkert sem ég þyrfti nauðsynlega við tímann í dag að gera - fyrir utan að eiga pantaðan tíma úti í bæ kl. 15.30 í dag.

Það var ótrúlega skrítin tilfinning, og þó ég eigi ennþá eftir að skrifa eina ritgerð þá verður það ekkert af mér tekið að ég er búin með þessa. Sem þýðir að LLM gráðu hef ég óformlega lokið (formlega lokið þegar ég fæ einkunnina og prófskírteinið). Auk þess að vera lögfræðingur og viðskiptafræðingur, hef ég nú lokið framhaldsnámi í lögfræði með áherslu á upplýsinga- og samskiptatæknilög.

Þegar einni ritgerð er lokið enn, verð ég svo loksins komin með fullnaðarprófið sem ég hef beðið eftir lengi.

...excellente!!

Kollý (not verified) | 24.09.2007

Til hamingju, til hamingju, til hamingju, til hamingju, til hamingju, til hamingju, til hamingju, til hamingju, til hamingju, til hamingju, til hamingju, til hamingju, til hamingju, til hamingju, til hamingju, til hamingju,
og 100 sinnum í viðbót.

:) zankjú

elfur | 25.09.2007

zankjú zankjú og 100+ sinnum í viðbót :)

 

Post new comment

The content of this field is kept private and will not be shown publicly.
  • Allowed HTML tags: <a> <em> <strong> <cite> <code> <ul> <ol> <li> <dl> <dt> <dd><blockquote>
  • Lines and paragraphs break automatically.
More information about formatting options