Þú ert númer ... 78 ... í röðinni

3 Jul 2007 | elfur

Mér brá óneitanlega svolítið mikið þegar ég heyrði tölvustýrðu röddina segja mér að ég væri nr. 78 í röðinni þegar ég hringdi í tryggingafélagið mitt hér í Noregi í morgun. Ég róaðist aðeins þegar strax þar á eftir komu upplýsingar um að 56 aðilar sæu um að svara símtölum.

En það var ljóst að það var mikið að gera og tölvustýrða röddin sagði mér það líka, að mikið álag væri á innhringingum í augnablikinu. Röddin bauð mér að slá inn símanúmerið sem hægt væri að ná í mig í og þjónustuverið myndi síðan hringja í mig þegar röðin kæmi að mér.

Þannig að, ég bíð núna í biðröð eftir að komast að hjá þjónustufulltrúa tryggingafélagsins - sem hringir í mig þegar röðin er komin að mér.

Hvað ætli röð 78 manna sé lengi að líða?

Takk fyrir hjálpina

Sveinn Arnarsson (not verified) | 04.07.2007

Þakka þér innilega Elfur fyrir svar þitt um íbúðalánasjóð á síðunni minni. Það sem ég er hins vegar að velta fyrir mér, er hvort ég sé byrjaður í "einhverju ferli" innan íbúðalánasjóðs. Það eina sem ég gerði var að ég fékk lánshæfismat fyrir ákveðinni upphæð. Þrátt fyrir breytingarnar er ég enn hæfur, þeir eru bara búnir að skerða hlutinn um heil 10% (af heildarverði).

Örugglega byrjaður í ferli

elfur | 05.07.2007

Jú þú ert örugglega byrjaður í einhverju ferli hjá sjóðnum ef þú ert búinn að skrifa undir kaupsamning á grundvelli greiðslumats frá þeim. Spurningin er þá bara hvort það ferli er grundvöllur þess að þú fáir lánveitingu samkvæmt gömlu reglugerðinni. Því getur einungis þjónustuverið svarað.

 

Post new comment

The content of this field is kept private and will not be shown publicly.
  • Allowed HTML tags: <a> <em> <strong> <cite> <code> <ul> <ol> <li> <dl> <dt> <dd><blockquote>
  • Lines and paragraphs break automatically.
More information about formatting options