Útskýringar á ritgerð?

26 Jun 2007 | elfur

Þetta er nokkurn veginn nákvæmlega það sem ég er að skrifa um af miklum móð þessa dagana.

Samkvæmt heimildum Orðsins á götunni eru dæmi um það meðal stórra fasteignafélaga á höfuðborgarsvæðinu að þeir komi fyrir staðsetningarbúnaði á erlendum konum sem sjá um þrif á eignum þeirra.

Þetta mun vera í þeim tilgangi að fylgjast með því hvar þær eru á hverjum tíma og hvort þær séu ekki örugglega að vinna ölllum stundum. Það er spurning hvort um sé að ræða búnað svipaðan þeim sem bandarísk fangelsisyfirvöld nota til að fylgjast með því hvort fólk sem dæmt eru í stofufangelsi sé heima hjá sér og sjá má hér á myndinni til hliða?

Ég geri fastlega ráð fyrir að hér sé um nýtingu á RFID tækninni að ræða, þar sem einstaklingurinn ber á sér t.d. lítið aðgangskort sem notað er til þess að opna læstar hurðir. Ákveðnum fjölda lesara er síðan komið fyrir út um allt hús og þannig er hægt að fylgjast með öllum hreyfingum þess aðila sem kortið ber - í þrívídd.

Nauðsynlegt er náttúrulega að hafa aðgangskortið á sér, því annars kemstu ekki í gegnum læstar dyr. Þess vegna er engin ástæða til þess að festa þetta um ökla starfsmannanna eins og gefið er til kynna í færslunni sem ég vísa til.

Þetta er sama tækni og notuð er í vegabréfin okkar, nema á þeim örmerkjum eru geymdar miklu viðkvæmari upplýsingar en eitt seríalnúmer (sem er væntanlega það sem finna má á aðgangskortunum sem væntanlega eru í notkun hjá fasteignafélögunum :))

Ritgerðin mín snýst einmitt um að skoða lagaleg áhrif RFID tækninnar á persónuvernd og friðhelgi einkalífs.

Þetta er svona að mér

Dalla (not verified) | 03.07.2007

Þetta er svona að mér skilst í Helstirninu (húsi OR) líka t.d., þ.e. fólk verður að hafa kort á sér þar sem allar hurðir eru því annars læstar og þannig í raun hægt að fylgjast með ferðum þeirra. kv. Dalla.

 

Post new comment

The content of this field is kept private and will not be shown publicly.
  • Allowed HTML tags: <a> <em> <strong> <cite> <code> <ul> <ol> <li> <dl> <dt> <dd><blockquote>
  • Lines and paragraphs break automatically.
More information about formatting options