Gerðu ekki neitt!

11 Mar 2007 | elfur

Ég hlusta eiginlega aldrei á Útvarp Sögu. Þá sjaldan það gerist er það í gegnum vefsíðu Morgunhanans þegar ég sé á vefnum hjá honum viðtal sem gæti verið áhugavert og tek sénsinn og prófa.
Í dag var einn slík hlustunardagur og tilefnið var viðtal við Kristrúnu Heimisdóttur lögfræðing og frambjóðanda Samfylkingarinnar. Þau Jóhann og Kristrún ræddu um tillögu stjórnarinnar að auðlindaákvæði í stjórnarskrá.
Ég hafði séð á vefnum hjá Jóhanni að í framhaldi af því kæmi Birgir Guðmundsson að ræða um fréttir vikunnar og því lét ég upptökuna rúlla áfram, þó viðtalið við Kristrúnu væri búið.

Og þar leyndist hann, gullmolinn sem varð að færslu dagsins, mitt á milli auglýsinga sem lesnar voru af fólki á öllum aldri með mismikla getu til verksins. Gullmolinn var ágætlega lesinn en mikið óskaplega skildi ég mikilvægi þess að sækja menntun í auglýsingafræðum áður en maður ræður sig til þess að búa þær til:

Gerðu ekki neitt!
Láttu okkur bjarga fjármálunum.

Markaðsstofan

Það var og!

He, he, he,

Kolbrún (not verified) | 14.03.2007

er þetta ekki ótrúlega frábært!

 

Post new comment

The content of this field is kept private and will not be shown publicly.
  • Allowed HTML tags: <a> <em> <strong> <cite> <code> <ul> <ol> <li> <dl> <dt> <dd><blockquote>
  • Lines and paragraphs break automatically.
More information about formatting options