Meira bullið

19 Jan 2007 | elfur

Það skal ég nú segja ykkur að stundum er gengið of langt í tækninni.
Ég sit hér í sófanum heima hjá mér skjálfandi á beinum undir fína kasmír teppinu sem ég fékk í jólagjöf vegna þess að rafmagnið fór af í gærkvöldi.

Rafmagnið sem sagt fór af nálægt miðnætti í gærkvöldi og kom aftur u.þ.b. hálfum tíma síðar. Sem, samkvæmt öllum skynsemismælikvörðum, ætti ekki að leiða til þess að mér sé kalt í morgunsárið. En bíðið nú við, ég hef sagt frá því áður að ég bý í mjög tæknivæddri íbúð og hefur líkað það bara mjög vel - þar til núna.

Það fyrsta sem gerðist nefnilega þegar rafmagnið fór á aftur var að loftræstingin fór á fullt og þegar ég kíkti á stillingarnar í gærkvöldi þá hafði hún núllstillt sig sem þýddi að hún var að vinna að því á fullum styrk að ná aftur 17° hita í íbúðina. Ég lagaði loftræstinguna og fór svo að sofa, til þess eins að átta mig á því nú í morgun að blessaður gólfhitinn er rafmagnsstýrður líka!

Þannig að ég sit hérna skjálfandi undir kasmír teppi bíðandi eftir því að það komi aftur hiti í gólfin, hafandi endurræst alla gólfhitaskynjara.

Svona ætla ég sko ekki að hafa þetta í minni íbúð!

REUNION !!!!! 24.febrúar - Allur árgangur 1971 úr Kópavogi !!!

Gestur (not verified) | 25.01.2007

Sæl og blessuð ELfur !!!
Nú er ég vonandi búin að finna þig !!!!

Viltu senda á mig e-mailið þitt svo ég geti sett þig í grúppuna !!1

Kveðja
Guðný Lára

Sælt veri fólkið.

Ég veit þið trúið því ekki en í vor eru liðin 20 ár frá því að við kvöddum Þinghólsskóla saman.

Ég heiti Guðný Lára Jóhannsdóttir og var með ykkur í þessum hópi ef einhver man ekki !!!!

Tilefni þessa bréfs er að biðja ykkur um að taka frá daginn 24.febrúar því þann dag ætlum við að halda upp á þessi tímamót !!!

Dagskráin verður nánar kynnt síðar en það er hins vegar ákveðið að mikill gleðskapur verður í Félagsheimili Kópavogs, Fannborg 2 um kvöldið.

Ég, Þórhallur, Laufey og Dagný höfum verið að reyna að safna saman netföngum hjá öllum en ekki alveg gengið 100% svo ég sendi með nöfnin á þeim sem ekki hefur gengið að finna netföng hjá !

Andri Konráðsson - búsettur í Noregi
Berglind Pála Bragadóttir
Björg Ólafsdóttir
Bylgja Björk Backman
Eggert Sæmundur Rútsson
Einar Kr. Sveinbjörnsson
Erwin H.Brynjarsson
Helgi Björn Ormarsson - Búsettur í Danmörku
Hjálmfríður Þ.Guðrúnardóttir
Jón Emil Þorsteinsson
Kristín Baldursdóttir - búsett í USA
Rúnar Berg Guðleifsson
Stefán Guðmundsson
Steinar Ás Ásmundsson - búsettur í Þýskalandi
Steinunn Ósk Óskarsdóttir

Ef einhver ykkar veit netföng hjá þessum hér að ofan eða veit eitthvað hvað þau eru að gera - væru þær upplýsingar vel þegnar ....

Að lokum vil ég benda ykkur á að í tilefni þessa tímamóta þá er búið að opna bloggsíðu sem ég vil endilega hvetja ykkur að fara inná og senda kveðjur og/eða gamlar myndir svona til að rífa upp stemminguna !!!

slóðin er: http://www.blog.central.is/1971kop

Hlakka til að heyra frá ykkur.

nefndin !!

Guðný Lára Jóhannsdóttir - glj@icelandair.is
Þórhallur Matthíasson - thorhallurm@mest.is

 

Post new comment

The content of this field is kept private and will not be shown publicly.
  • Allowed HTML tags: <a> <em> <strong> <cite> <code> <ul> <ol> <li> <dl> <dt> <dd><blockquote>
  • Lines and paragraphs break automatically.
More information about formatting options