Afhendingartími Norðmanna

24 Oct 2006 | elfur

Það verður seint sagt um Norðmenn að þeir séu snöggir að hlutunum. Þeir flýta sér hægt - og á köflum alveg rosalega hægt. Það tekur vikur að fá kennitölu, daga að ganga frá einföldum skráningum tengdum skólagöngu og svo mætti lengi telja. En það sem truflar mig sérstaklega þessa dagana er að sófinn sem ég keypti þann 29. ágúst síðastliðinn - segi og skrifa ÁGÚST - er ekki ennþá kominn og mun ekki koma fyrr en eftir eina viku í viðbót.

Gott og vel, ég fékk þær upplýsingar þegar ég keypti hann að hann yrði afhentur í viku 42 eða 43. Áður en ég gekk frá pöntuninni var reyndar sagt að afhendingartíminn væri 6-8 vikur og vika 43 er áttunda vikan. Nú ber svo við að þegar ég hringdi í morgun til þess að ganga frá afhendingartíma, svona svo ég yrði heima þegar sófinn kæmi, þá fékk ég þær upplýsingar að hann væri ekki kominn og hans væri ekki að vænta fyrr en í næstu viku. Í næstu viku verða liðnar 9 vikur frá því ég pantaði sófann og greiddi 20% af verði hans.

Ég hef nákvæmlega sömu sögu að segja um stólana tvo sem ég sagði frá um daginn. Ég keypti þá fyrir einum sjö vikum síðan og fékk þær upplýsingar að afhendingatími slíkra stóla væri 4 vikur. Strax við kaupin var gengið frá nákvæmum afhendingardegi, 4. október milli 16 og 20. Þegar líða tók nær hinum ákveðna afhendingardegi fékk ég hins vegar póst þar sem mér var tilkynnt að afhending á stólunum drægist fram til 11. október. Mér fannst það reyndar ekkert verra, þar sem ég hafði þegar ákveðið að vera komin til Kaupmannahafnar þann 4. október kl. 16. En þegar 11. október rennur upp og mamma er búin að bíða hér heima í einhverja tíma, hringir síminn og henni er sagt að stólarnir komi ekki þann daginn og engar fékk hún upplýsingarnar um hvenær þeir kæmu. Þegar ég hringi síðan í verslunina daginn eftir, kemur í ljós að þau eru búin að týna stólunum - þau vita ekki hvar þeir eru og þess vegna ekki hvenær þau geta afhent þá.
- Þeir fundust síðan viku síðar, voru sem sagt afhentir 6 vikum eftir að ég gekk frá kaupum á þeim.

Það er sem sagt ekki tilviljun að afhending frestast - það virðist hreinlega vera lenska í þessu afslappaða landi.
- ég á bágt með að ímynda mér að slíkt myndi ganga á hinu afslappaða Íslandi.

 

Post new comment

The content of this field is kept private and will not be shown publicly.
  • Allowed HTML tags: <a> <em> <strong> <cite> <code> <ul> <ol> <li> <dl> <dt> <dd><blockquote>
  • Lines and paragraphs break automatically.
More information about formatting options