Í Köben, í Köben, í kóngsins Köbenhavn

9 Oct 2006 | elfur

(Með lagi Stuðmanna)
Í Köben, í Köben, í kóngsins Köbenhavn
... (lallalalllalllalalla :)

Ég var sem sagt í Kaupmannahöfn stóran hluta síðustu viku.
Í Kaupmannahöfn í síðustu viku var norræn ráðstefna um upplýsingatæknilögfræði og ég framlengdi dvölina til sunnudags. Lóa kom með mér yfir og mamma kom frá Íslandi til að vera með henni á meðan ráðstefnan stóð.

Hér á næstu dögum munu birtast frásagnir af ráðstefnunni (og frítímanum) og það sem að öðru leyti hefur á daga mína drifið.

Gaman að hitta þig í

María (not verified) | 11.10.2006

Gaman að hitta þig í Köben! Ég er ekkert smá ánægð með þig að rífa þig upp frá ilmandi kaffibollanum í kósý-stemningunni hjá ykkur mæðgum og hlaupa útá götu t.a. kasta á mig kveðju! :-) Gaman að sjá þig stelpa!
Ég verð í Washington eftir tæpan mánuð - þú lofar að endurtaka leikinn ef þú sérð mig á röltinu - hehe :-)

Ekki spurning, búin að panta miðann

elfur | 11.10.2006

Takk fyrir sömuleiðis, ótrúlega gaman þegar svona gerist - að rekast á kunningja og vini í útlöndum.
Tala nú ekki um þegar maður býr í öðrum útlöndum sjálfur.

 

Post new comment

The content of this field is kept private and will not be shown publicly.
  • Allowed HTML tags: <a> <em> <strong> <cite> <code> <ul> <ol> <li> <dl> <dt> <dd><blockquote>
  • Lines and paragraphs break automatically.
More information about formatting options