Þörf á endurnýjun
Ég vissi að líftími hönnunarinnar á vefsvæðinu hjá mér væri takmarkaður, en ég átti ekki von á því að sextán mánuðum eftir að það færi í loftið yrði ég að fara að huga að endurnýjun vegna þess að þetta útlits"konsept" væri að tröllríða þjóðinni, hvort heldur sem er í hefðbundnum auglýsingum eða vefsvæðum hinna ýmsu stórfyrirtækja - sérstaklega í fjármálageiranum.
Allar vefsíður eru fullar af litlum ferningum á lituðum bakgrunni - með rúnnuðum hornum.
... og ég sem var svo sátt við hönnunina, sheesh.
Ég er samt ekki frá því að breytingin sem ég geri verði léttvæg fyrst um sinn, spurning um að taka mjúku hornin af og halda litatónunum. Í öllu falli, þá er ljóst að nýta þarf jólafríið í eitthvað annað en bókalestur - einu sinni enn.

heh. ég hlakka til að koma
heh. ég hlakka til að koma til þín með tölvuna í hönnunarleiðangur - or so to speak...