Ég á ekki til orð ...

2 Dec 2003 | elfur

... ég meina: KRAKK. Af öllum hlutum, hvernig datt ykkur í hug að reyna að fá skrásett vörumerkið KRAKK sem sælgæti!?

Ég er sem sagt að lesa hugverkarétt eina ferðina enn enda próf á laugardag og viti menn, í fyrirlestri í vetur tekur Rán dæmi um að Einkaleyfastofan hafi hafnað beiðni um skráningu vörumerkisins KRAKK enda augljóslega andstætt velsæmi.

Það sem ég skil ekki er hvernig í ósköpunum einhverjum datt í hug að nota nafnið, að reyna að nota nafnið á jákvæðan máta. Eigum við ekki í nægum vandræðum með markaðssetningu á ólöglegum eiturlyfjum (við ræðum um þau löglegu síðar!) svo við, þessi löghlýðnu, förum ekki að aðstoða undirheimana með því að setja, bókstaflega, KRAKK á milli tannanna á fólki.

Hver sem umsækjandinn var, hann ætti virkilega að skammast sín.

 

Post new comment

The content of this field is kept private and will not be shown publicly.
  • Allowed HTML tags: <a> <em> <strong> <cite> <code> <ul> <ol> <li> <dl> <dt> <dd><blockquote>
  • Lines and paragraphs break automatically.
More information about formatting options