Auglýsingaskrum

Dec 2
2003

Af hverju

Ég get ekki orða bundist lengur. Í garð er genginn einn
auglýsingaþyngsti tími ársins og það gefst ekki betri tímasetning til þess að byrja að tjá sig um efni þeirra.

Ég er alin upp í bransanum. Móðir mín og bróðir reka með
starfsfélaga sínum nokkuð stóra og öfluga auglýsingastofu og hafa gert síðastliðin 13 ár. Alla mína hunds- og kattartíð hefur umfjöllun á heimilinu meðal annars verið um auglýsingar, markaðssetningu og skynsama beitingu almannatengsla.

Atvikið

Frægt er orðið (innan takmarkaðs hóps) orrahríð mín við
framkvæmdastjóra auglýsingastofu fyrr í haust, vegna þess sem ég hef kallað augljósan ritstuld og fjallað er um í þönkum mínum undir yfirskriftinni afritun og eftirgerð en látum það atvik liggja á milli hluta og einbeitum okkur að framtíðinni.

Afleiðingarnar

Þar hefurðu það, hér á þessum síðum áttu örugglega eftir að sjá mínar athugasemdir um auglýsingar sem birst hafa á prenti eða
varpmiðlum. Jafnvel dreifiefni sem berst inn um lúguna eða hringingar sem áreita mig um leið og maturinn er lagður á borðið.

 

Reply

The content of this field is kept private and will not be shown publicly.
  • Allowed HTML tags: <a> <em> <strong> <cite> <code> <ul> <ol> <li> <dl> <dt> <dd><blockquote>
  • Lines and paragraphs break automatically.
More information about formatting options