Ég er í færslubanni "rétt á meðan" ég klára síðustu meistaraprófsritgerðina mína, en ég gat samt ekki orða bundist eftir upplifun mína nú áðan.

Af óútskýrðum ástæðum var ég, þar til fyrir 10 mínútum síðan, áskrifandi af markaðspóstum frá Dell Norge, sem er svosum ekki í frásögur færandi, nema ég ákvað að nú væri komið nóg og ég hefði ekkert við frekari áskrift þar að gera.

Ég fylgdi leiðbeiningunum í tölvupóstinum sem mér hafði borist, smellti á tengilinn og það opnaðist vefsíða þar sem ég gat sett inn netfangið mitt og valið að láta fjarlægja áskrift, sem ég og gerði.

Að því loknu fæ ég klassíska skilaboðasíðu þar sem tilgreint er að frá þessu verði gengið en það gæti tekið smá stund. Hluti skilaboðanna hljóðuðu svona:

As of 11/15/2007 09:40:49, this e-mail address will be opted out from all marketing e-mail subscriptions within 48 hours. In the interim, you may continue to receive e-mail marketing to which you originally subscribed.

Fair enough hugsaði ég, menn hljóta að vera að gera þetta handvirkt úr því það tekur heila tvo daga, en við látum okkur hafa það.

En svo kom í ljós þjónustulund þeirra Norðmanna, því stuttu síðar barst mér tölvupóstur til staðfestingar á þessari beiðni minni og þar höfðu Norðmennirnir þetta að segja:

Vi setter pris på å ha deg som kunde, og på din anmodning har vi fjernet din e-postadresse fra markedsføringslisten.

Du er slettet fra: [netfangið sem ég notaði]

Det kan ta opptil 28 arbeidsdager før endringen er ferdigbehandlet. I mellomtiden kan du motta e-post med reklame som du tidligere abonnerte på.

Það er ekki á Norðmennina logið. Það tekur þá allt að 28 virka daga að vinna það sem Kaninn telur sig þurfa tvo daga til.

Klassískir Norðmenn var það eina sem ég hugsaði.

 

Reply

The content of this field is kept private and will not be shown publicly.
  • Allowed HTML tags: <a> <em> <strong> <cite> <code> <ul> <ol> <li> <dl> <dt> <dd><blockquote>
  • Lines and paragraphs break automatically.
More information about formatting options